Jón Daði spilaði flesta landsleiki á árinu 2015 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. nóvember 2015 15:30 Jón Daði Böðvarsson. Vísir/Getty
Jón Daði Böðvarsson kom við sögu í tapinu á móti Slóvakíu í gærkvöldi en þetta var ellefti og síðasti landsleikur karlalandsliðsins í fótbolta á árinu 2015. Jón Daði var þarna að taka þátt í tíunda landsleik sínum á árinu 2015 en hann missti bara af einum landsleik á þessu ári. Jón Daði gat ekki spilaði vegna meiðsla í jafntefli á móti Lettland í október. Jón Daði var í byrjunarliðinu í sjö af þessum tíu leikjum en hann náði ekki að spila allar 90 mínúturnar í neinum þeirra þar sem hann var tekinn útaf í öllum sjö leikjunum sem hann byrjaði. Jón Daði er eini leikmaður liðsins sem náði að spila tíu landsleiki á árinu 2015 en hann lék einum leik meira en þeir Ari Freyr Skúlason, Birkir Már Sævarsson, Jóhann Berg Guðmundsson og Ragnar Sigurðsson. Ari Freyr Skúlason var hinsvegar sá sem var oftast í byrjunarliðinu á árinu 2015 eða alls átta sinnum. Birkir Bjarnason, Birkir Már Sævarsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Jón Daði Böðvarsson og Ragnar Sigurðsson byrjuðu allir sjö leiki. Jón Daði er aðeins sjöundi leikmaðurinn á þessari öld sem nær að spila tíu A-landsleiki á einu ári en fjórir af hinum sex náðu því á árinu 2013 þegar íslenska landsliðið spilaði tíu leiki. Jón Daði er nú á leiðinni í þýska boltann en hann spilaði síðasta leik sinn með norska úrvalsdeildarliðinu Viking. Jón Daði spilar með þýska b-deildarliðinu Kaiserslautern eftir að vetrarfríinu lýkur í Þýskalandi.Tíu landsleikjaár leikmanna á þessari öld (frá og með 2000):11 landsleikir Birkir Már Sævarsson, 2008 11 (11 í byrjunarliði)10 landsleikir Pálmi Rafn Pálmason, 2008 (3) Birkir Bjarnason, 2013 (10) Ari Freyr Skúlason, 2013 (9) Ragnar Sigurðsson, 2013 (9) Eiður Smári Guðjohnsen, 2013 (5) Jón Daði Böðvarsson, 2015 (7)Flestir landsleikir spilaðir á árinu 2015: Jón Daði Böðvarsson 10 Ari Freyr Skúlason 9 Birkir Már Sævarsson 9 Jóhann Berg Guðmundsson 9 Ragnar Sigurðsson 9 Birkir Bjarnason 8 Kolbeinn Sigþórsson 8 Alfreð Finnbogason 7 Gylfi Þór Sigurðsson 7 Kári Árnason 7 Aron Einar Gunnarsson 6 Hannes Þór Halldórsson 6
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Íslenski boltinn Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn Damir á leið til Asíu Íslenski boltinn Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Fótbolti Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Enski boltinn „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Körfubolti Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Enski boltinn Ísak hættur með ÍR Körfubolti Fleiri fréttir Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Pogba við það að rifta samningi sínum við Juventus Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að kýla dómara Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Hlín og Guðrún báðar tilnefndar: „Það er engin eins og hún“ Sjá meira