Fær gjafir frá fuglum í stað góðgætis Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 26. febrúar 2015 12:31 mynd/skjáskot
Hin átta ára Gabi Mann hefur á undanförnum árum eignast afar góða vini. Hún færir þeim daglega mat og í staðinn færa þeir henni gjafir. Gabi hefur vakið heimsathygli því vinirnir eru krummar sem heimsækja hana daglega. Gabi var einungis fjögurra ára þegar hún gaf fuglunum fyrsta bitann. Matargjafirnar undu fljótt upp á sig og daglega stilla hrafnarnir sér upp á símalínu við heimili hennar. Alla morgna færir Gabi vinum sínum vatn og hnetur ásamt því að gefa þeim hundamat og annað góðgæti af og til. Þeir endurgjalda henni svo umhyggjuna með gjöfum.mynd/bbcGjafirnar sem Gabi fær eru afar fallegar, en hrafnar eru jafnan taldir miklir fagurkerar sem sækja mikið í skart og annað glingur. Þeir hafa fært henni ýmsa muni, til dæmis ljósaperu, hnappa, rennilása og legokubba. Henni þykir afar vænt um gjafirnar en þykir hvað vænst um perlu og málmhlut með áletruninni „best". „Svona sýna þeir mér að þeim þykir vænt um mig,“ sagði Gabi í samtali við BBC. Hún passar vel upp á gjafirnar og geymir þær í lokuðu boxi sem hún setur svo í skartgripaskrín. Hér fyrir neðan má sjá Gabi og vini hennar.Hún passar vel upp á gjafirnar sínar.mynd/bbc
Mest lesið Fá að leita í innrituðum farangri farþega að þeim fjarstöddum Innlent Sagðir hafa fundið um 1.500 skilaboð milli Þorsteins og Jóhannesar Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Erlent „Nauðsynlegt að bregðast við“ en aðgerðum fækkar Innlent Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Erlent Ítrekuð brot gegn grunnskólastúlku nauðgun eftir allt saman Innlent Mál umdeilda skákborðsins ætlar engan endi að taka Innlent „Fólk hefur verið að ýta við mér“ Innlent Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Erlent Fleiri fréttir Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Harris situr fyrir svörum hjá Fox News á morgun Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Leggur til að beita hernum gegn andstæðingum sínum Sjá meira