Erlent

Vill að vesturlönd sprengi konur og börn

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Frönsk Mistral orrustuþota.
Frönsk Mistral orrustuþota. Nordicphotos/AFP
Søren Espersen, formaður utanríkismálanefndar danska þingsins og þingmaður Danska þjóðarflokksins, sagði á sunnudaginn að vesturveldin ættu að gera átökin í Sýrlandi að „alvöru stríði“ með því að sprengja upp konur og börn í Sýrlandi.

Hann er þeirrar skoðunar að vesturveldin stundi hernað sinn af of mikilli „herramensku.“

„Við erum ekki að sprengja svæði þar sem óbreyttir borgarar halda til,“ sagði hann í samtali við fréttastofu TV2. „En við þurfum að byrja að gera það. Íslamska ríkið felur sig á bak við konur og börn í þorpum og bæjum og þeir vita að við erum of miklir herramenn til að sprengja þau í loft upp. Því þarf að linna,“ sagði Espersen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×