Erlent

Einn lést í sjálfsmorðsárás í Istanbul

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/ap
Einn lögreglumaður lést og annar er særður eftir að kona sprengdi sjálfa sig í loft upp inni á lögreglustöð í Istanbul í dag. Árásin var gerð á einu helsta ferðamannasvæði borgarinnar.

Talið er að konan hafi farið inn á lögreglustöðina, talað þar ensku og sagst hafa týnt veski sínu. Í kjölfarið hafi hún sprengt sjálfa sig í loft upp. Þjóðerni konunnar er ekki vitað að svo stöddu.

Einungis fimm dagar eru síðan karlmaður réðst á lögreglumann í Istanbul með byssu og handsprengjur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×