Erlent

Lögreglumaður á frívakt varð fyrir slysaskoti

Samúel Karl Ólason skrifar
Skömmu áður en Darryl Jouett
Skömmu áður en Darryl Jouett
Lögreglumaðurinn Darryl Jouett skaut sjálfan sig í magann þar sem hann var í lyftu ásamt eiginkonu sinni. Lögreglan hefur birt myndband af atvikinu. Darryl hefur verið í lögreglunni í Kentucky í 25 ár, en var í fríi í Cinncinati þegar slysið varð.

Myndbandið af atvikinu má sjá hér að neðan.

Lögreglan í Cinncinati gaf út tilkynningu um að Darryl hafi verið að lagfæra byssuhulstrið á belti sínu þegar skot hljóp af. Fyrst fór skotið í vegg lyftunnar og endurkastaðist í Darryl. Eiginkona hans hringdi í neyðarlínuna og kallaði eftir hjálp.

Darryl var fluttur á sjúkrahús þar sem hann er nú að jafna sig, en honum hefur verið skipað að ræða ekki við fjölmiðla samkvæmt Huffington Post.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×