Sport

Peyton afhenti Luck kyndilinn

Peyton óskar Andrew Luck til hamingju með sigurinn í gær.
Peyton óskar Andrew Luck til hamingju með sigurinn í gær. vísir/getty
Það er nú ljóst hvaða lið spila til undanúrslita í NFL-deildinni en átta liða úrslitin fóru fram um helgina. Úrslit voru eftir bókinni í þrem leikjum af fjórum. Sigur Indianapolis Colts gegn Denver Broncos kom nokkuð á óvart.

Hinn goðsagnakenndi leikstjórnandi Denver, Peyton Manning, varð þar að sætta sig við tap gegn sínu gamla félagi og manninum sem hann þurti að rýma fyrir - Andrew Luck. Táknrænt og sögulegt.

Margir eru á því að Luck muni taka yfir deildina fyrr frekar en síðar en hans tími átti kannski ekki að koma strax. Í stað þess að fá enn einn leikinn hjá Manning og Tom Brady er það arftakinn, Luck, sem mætir Brady um næstu helgi.

Hinn rómaði sóknarleikur Denver komst aldrei á flug gegn Indianapolis og Manning var fjarri sínu besta. Hann var einfaldlega lélegur og einkennilegt að sjá hann kasta ítrekað lélegar sendingar.  Það var ekki að sjá að Manning væri hreinlega í lagi. Hann var eðlilega þungur eftir leikinn og vildi ekki staðfesta að hann kæmi aftur næsta vetur sem hann hafði áður talað um að gera. Manning þarf líklega að jafna sig á þessu áfalli áður en hann tekur endanlega ákvörðun um framtíð sína.

Varnarleikur Colts var reyndar frábær en það afsakar samt ekki slakan leik Manning sem margir óttast að sé nú búinn að vera. Þetta átti að vera tímabilið hans en arftakinn sýndi honum enga virðingu.

Gripið sem aldrei varð. Bryant er hér búinn að grípa sendinguna sem hefði getað tryggt Dallas sigur. Upprunalegum dómi var snúið við.vísir/getty
Þrátt fyrir að vera meiddur aftan í kálfa þá náði leikstjórnandi Green Bay Packers, Aaron Rodgers, að leiða sitt lið í gegnum leikinn gegn sterku liðið Dallas Cowboys.

Gríðarlega umdeilt atvik átti sér stað undir lok leiksins er útherji Dallas, Dez Bryant, greip sendingu við endamark Green Bay er leikurinn var á línunni. Dómarar sögðu hann hafa gripið boltann en afturkölluðu ákvörðun sína eftir að hafa skoðað atvikið betur.

Dómurinn afar umdeildur og verður rifist um þetta atvik næstu árin enda kostaði hann Dallas hugsanlega sæti í undanúrslitum.

Úrslit helgarinnar:

New England-Baltimore  35-31

Denver-Indianapolis  13-24

Seattle-Carolina  31-17

Green Bay-Dallas  26-21

Undanúrslit:

Seattle - Green Bay

New England - Indianapolis

Undanúrslitaleikirnir næsta sunnudag verða sýndir á Stöð 2 Sport sem og úrslitaleikurinn - Super Bowl.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×