Erlent

Skaut fjölda skota inn í strætó

Samúel Karl Ólason skrifar
Maðurinn gekk upp að strætónum og skaut mörgum skotum inn.
Maðurinn gekk upp að strætónum og skaut mörgum skotum inn.
Lögreglan Kansas í Bandaríkjunum hefur birt myndband af skotárás á strætó í borginni í fyrra. Fimmtán ára stúlka slasaðist alvarlega í árásinni, en lögreglan hefur beðið um hjálp íbúa við að bera kennsl á árásarmanninn.

Eftirlitsmyndavélar utan á strætónum og inn í honum sýna hvernig maður í hettupeysu gengur upp að strætónum og skýtur fjölda skota inn um rúðurnar. Árásin átti sér stað þann 30. desember í fyrra.

Samkvæmt AP fréttaveitunni telur lögreglan að kærasti stúlkunnar hafi verið skotmark árásarinnar en hún sat á milli hans og árásarmannsins.

Hér má sjá myndbandið í betri gæðum



Fleiri fréttir

Sjá meira


×