Lífið samstarf

Hvað eiga Pharrell, Beckham, Manuela Ósk og Jón Jónsson sameiginlegt?

Sigurður ólafur Sigurðsson
Adidas superstar og Stan Smith skórnir eru nú loksins komnir til Íslands. Adidas og Kaupfélagið bjóða í Superstar Partý í Kaupfélaginu í Smáralind klukkan 18 á fimmtudag. Tveir heppnir fá skó frá Adidas.



Kaupfélagið Smáralind,  Skór.is Kringlunni og skor.is netverslun, fá Adidas Superstar skóna í hillurnar á morgun og þar á meðal Stan Smith skóinn sem tónlistarmaðurinn Pharell Williams hannaði.

Adidas superstar og Stan Smith skórnir hafa farið sigurför um heiminn síðastliðið ár og eru nú loksins komnir til Íslands. Andlit Adidas Superstar og Stan Smith eru til dæmis David Beckham, Rita Ora og Pharell Williams. 

Þá skrifaði tónlistarmaðurinn Jón Jónsson nýlega undir samstarfssamning við Adidas. 

Tískubloggarar hafa verið duglegir að  fjalla um skóna. Þeirra á meðal Manuela Ósk Harðardóttir en hún bloggar um tísku á Króm.is.

„Þessir skór eru úti um allt núna og njóta mikilla vinsælda um allan heim,“ segir Manuela.  „Ég er búin að eiga mína í um það bil ár, original skóna hvítu með svörtu röndunum og mér finnst ótrúlega spennandi að sjá fólk eins og Pharell Williams og Rita Ora vera að hanna skóna í öllum þessum spennandi litum. Ég var einmitt að fá mér bláa með rauðum doppum.

Það er einhver nostalgía sem fylgir Adidas skónum. Ég man eftir Run DMC í þessum skóm og átti svona skó sem unglingur. Mér finnst ofboðslega gaman að sjá þetta „old school look“ vera að koma aftur.

Mér finnst þessir skór í raun ganga við allan klæðnað og hver og einn geta samsamað þá við eigin stíl. Þeir eru flottir við gallabuxur, leðurbuxur, stuttbuxur og pils. Ég ætla að mæta í Kaupfélagið í Smáralind á fimmtudagskvöldið og pottþétt í skónum,“ segir Manuela.

Tveir heppnir fá gefins skó



Adidas og Kaupfélagið bjóða þeim sem vilja kíkja á skóna eða næla sér í par að koma kl 18 á fimmtudaginn í Kaupfélagið Smáralind þar sem RVK Soundsystem mætir á staðinn ásamt söngvurum AMABADAMA , Sölku sól, Steinunni og Gnúsa Yones.  Tveir heppnir fá gefins nýja Superstar eða Stan smith skó! Hægt verður að fylgjast með herlegheitunum á snap: skor.is.

Takmarkað upplag! 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×