Innlent

Ríkið tilbúið að liðka fyrir kjarasamningum með aðgerðum

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ræddi komandi kjarasamninga á þingi í morgun.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ræddi komandi kjarasamninga á þingi í morgun. Vísir/Valli
Ríkið er tilbúið til að koma að kjaraviðræðum ef fram koma tillögur og ábendingar frá aðilum vinnumarkaðirns. Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á þingi þar sem hann ræddi við Katrínu Jakobsdóttur, formann Vinstri grænna, um komandi viðræður.



„Ég hef lýst því ítrekað yfir að undanförnum að ríkisstjórnin sé mjög opin fyrir tillögum, ábendingum, og lasunamiðaðri nálgun frá aðilum vinnumarkaðrins. Það er að segja við erum opin fyrir hugmyndum um hvað við getum lagt af mörkum,“ sagði hann.

Katrín hóf umræðuna undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir.Vísir/GVA
Forsætisráðherra sagði að fyrir viðræðurnar skipti máli hvernig ríkið hagar skattlagningu og gjaldtöku og í þeim málum sagði hann að ríkisstjórnin hefði sýnt að hún væri tilbúin að taka ábendingum aðila vinnumarkaðarins. 



Sigmundur Davíð sagðist einnig vonast til þess að sú undirbúningsvinna sem stjórnvalda hafa unnið í húsnæðismálum muni nýtast í „Vonandi má hún verða  til þess að liðka fyrir samningum og bæta um leið stöðu bæði leigjenda og þeirra sem vilja fjárfesta í húsnæði,“ sagði hann.



Í fyrirspurninni vildi Katrín einnig fá skýr svör um hvort forsætisráðherra styddi kröfu um krónutöluhækkanir fremur en prósentuhækkanir. Sigmundur svaraði því til að hann vildi sérstaklega að komið yrði til móts við fólk með lægri og millitekjur og að krónutöluhækkanir væru best fallnar til þess. 



„Eins og ég hef ítrekað lýst yfir tel ég krónutöluhækkun vera skynsamlega nálgun í þeim kjarasamningum sem í hönd fara,“ sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×