Innlent

Bein útsending frá fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar með umboðsmanni

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Ræða á ársskýrslu embættis umboðsmanns Alþingis frá 2013.
Ræða á ársskýrslu embættis umboðsmanns Alþingis frá 2013. Vísir/GVA
Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, kemur fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í dag til að fara yfir skýrslu sína um árið 2013. Sýnt verður beint frá fundinum, sem er opinn, á Vísi.



Auk Tryggva koma þau Berglind Bára Sigurjónsdóttir skrifstofustjóri og Særún María Gunnarsdóttir, lögfræðingur hjá embættinu, fyrir fundinn.



Skýrslan sem verður til umræðu á fundinum er ársskýrsla umboðsmanns fyrir árið 2013. Hægt er að nálgast skýrsluna hér . Umboðsmaður þarf árlega að skila Alþingi skýrslu um starfsemi sína á liðnu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×