Golf

Bein útsending á Golfstöðinni klukkan 13.00

Patrick Reed er höggi á eftir efstu mönnum.
Patrick Reed er höggi á eftir efstu mönnum. vísir/getty
Ekki náðist að ljúka leik á Honda Classic í gær og mótið verður því klárað í dag.

Kylfingar hefja aftur leik klukkan 13.00 og þá hefst einnig beint útsending frá mótinu á Golfstöðinni.

Paul Casey og Ian Poulter leiða mótið á sjö höggum undir pari en Patrick Reed kemur þar á eftir á sex höggum undir pari. Poulter var með þriggja högga forskot en tapaði því forskoti niður á síðustu tveim holunum áður en leik var hætt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×