Golf

Sigurður Arnar og Aron Snær jafnir eftir dag eitt

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Aron Snær leiðir ásamt Sigurði Arnari.
Aron Snær leiðir ásamt Sigurði Arnari. seth@golf.is

Aron Snær Júlíusson og Sigurður Arnar Garðarsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, GKG, leiða eftir fyrsta dag Íslandsmótsins í golfi. Mótið fer fram á Hólmsvelli í Leiru. Sá er örlítið breyttur en hann er par 71 í dag í stað 72.

Bæði Aron Snær og Sigurður Arnar léku á samtals 65 höggum eða sex höggum undir pari og settu þar með vallarmet.

Magnús Yngvi Sigursteinsson, Sigurður Bjarki Blumenstein og Jóhannes Guðmundsson koma jafnir þar á eftir á fjórum höggum undir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×