Skipulag skiptir höfuðmáli þegar kemur að fjölskyldulíf þeirra og þegar eitthvað bjátar á er lausn fundin, í sófanum heima, í sameiningu. Hildur og Ragnar segja börnin nær alltaf hafa lausnir á reiðum höndum, yfirleitt bestu lausnirnar.
Börnin skipta hlutverkum sín á milli til að létta á móður sinni. Þeim er skipt niður í þrjá hópa sem svo skipta á milli sín uppvaski, á morgnanna, hádeginu og kvöldin, þar sem ekki er pláss fyrir uppþvottavél á heimilinu.

Yngsta barnið á heimilinu er fimm mánaða og það elsta tuttugu ára. Ákvörðunin um að stofna svo stóra fjölskyldu var meðvituð og var tekin eftir að þau hjónin hittu þýskan prest og konu hans sem áttu saman tíu börn. Fljótlega eftir það hættu þau að stjórna barneignum sínum og bjóða börnin velkomin þegar þeim hentar að koma.
„Þetta er eins og tilgangurinn í lífinu, ég hef ákveðinn tilgang,“ segir Hildur, en hluta af þættinum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.