Erlent

Mögulega stærsta gimsteinarán sögunnar

Samúel Karl Ólason skrifar
Þjófarnir brutust inn í 60 til 70 öryggishólf.
Þjófarnir brutust inn í 60 til 70 öryggishólf. Vísir/EPA
Bíræfnir þjófar stálu gífurlegum fjölda gimsteina og skartgripa í London um helgina. Talið er að þjófarnir hafi brotið sér leið í gegnum þak húss, farið niður lyftugöngin og brotist inn í öryggishvelfingu. Mögulega er þetta stærsta rán sögunnar.  Í húsinu er rekið öryggisfyrirtæki sem sér um varðveislu hráefnis fyrir skartgripaframleiðendur.

Lögreglan í London segir að þjófarnir hafi notað þungar iðnaðarvélar til að brjóta sér leið inn í öryggishvelfinguna, þar sem þær rændu munum úr 60 til 70 öryggishólfum.

Á vef Sky News segir að hvelfingin hafi verið styrkt með málmum og steypu og að hurðin hafi verið um 60 sentímetra þykk. Sérfræðingur sem rætt er við segir að þýfið sé nú þegar komið úr landi.

Hann líkir ráninu við eitthvað sem sést í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum.

Flestir eigendur ótryggðir

Fyrirtækið er í Hatton Gardon hverfinu í London, sem þekkt er fyrir skargripaframleiðslu. Mörg af öryggishólfunum voru í eigu skartgripaframleiðenda sem geymdu dýrmæta steina þar. Eigandi eins hólfs sem Sky ræddi við sagði að eigendur hólfanna væru flestir ótryggðir.

Lögreglan hefur ekki safnað saman upplýsingum um hvert heildarverðmæti þýfisins er, þar sem þeir vita ekki enn hverju var stolið. Áætlanir segja til um allt frá hundruðum þúsunda punda verðmæti að 200 milljónum punda verðmæti, sem samsvarar um 40 milljörðum króna.

Öryggiskerfi hússins fór í gang á föstudagskvöldið og mættu öryggisverðir á svæðið. Þeir fóru hins vegar ekki inn og horfðu bara inn í gegnum gluggana. Þar sem þeir sáu enga hreyfingu fóru þeir í burtu.

Þjófarnir höfðu því mögulega alla páskahelgina til að athafna sig. Lögreglan heyrði ekki af þjófnaðinum fyrr en í gær. Sé þýfið komið úr landi telja sérfræðingar að nánast ómögulegt sé að það finnist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×