Lífið

Myndband: Leyndu vini og vandamenn því að von væri á tvíburum

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Stelpurnar tvær.
Stelpurnar tvær. mynd/youtube
Korey Rademacher og kona hans, Sharon Oberto, áttu von á sér. Líkt og oft þegar fólk á von á sér veit fólk í kringum það af því en Korey og Sharon tókst að halda því leyndu að þau ættu von á tvíburum.

Þau hafa birt myndband af því þegar vinir og vandamenn mæta á fæðingardeildina til að sjá nýfætt barnið en mörgum bregður í brún þegar þau sjá að börnin eru tvö en ekki aðeins eitt. Stelpurnar hafa fengið nöfnin Miryann Grace og Brianna Faith.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×