Erlent

Sjö handteknir vegna eins stærsta gimsteinaráns sögunnar

Samúel Karl Ólason skrifar
Til að komast að öryggishólfunum þurftu þjófarnir að bora stórar holur í gegnum 50 sentímetra þykkan vegg.
Til að komast að öryggishólfunum þurftu þjófarnir að bora stórar holur í gegnum 50 sentímetra þykkan vegg. Vísir/AFP
Sjö menn hafa verið handteknir fyrir aðild að Hatton Garden gimsteinaráninu í apríl. Þá brutust menn inn í öryggisþjónustu sem rak öryggishólf fyrir gimsteinasala og komust undan með peninga og gimsteina sem metið var á um 200 milljónir pund. Það samsvarar um 41 milljarði króna.

Um 200 lögregluþjónar gerðu atlögu að 12 stöðum þar sem mennirnir sjö voru handteknir, en þar að auki fundust stórir pokar sem lögreglan segir að hafi að öllum líkindum innihaldið þýfi. Mennirnir eru allir breskir og eru á aldrinum 48 til 76 samkvæmt Sky News.

Öryggisfyrirtækið sem mennirnir brutust inn í var rekið á svæði í London þar sem fjölmörg skartgripafyrirtæki eru rekin og eigendur þeirra geymdu margir hverjir dýrmæta gimsteina í öryggishólfum.

Boruðu sig í gegnum þykkan vegg

Ránið átti sér stað yfir páskahelgina þegar fáir voru á ferðinni í hverfinu og fengu þjófarnir nægan tíma til að athafna sig.

Til að komast að öryggishólfunum þurftu þjófarnir að bora stórar holur í gegnum 50 sentímetra þykkan vegg. Þegar það var búið tæmdu þeir fjölda öryggishólfa og komust undan á hvítum sendiferðabíl.

Lögreglan var gagnrýnd vegna ránsins og þá sérstaklega þegar í ljós kom að lögreglan brást ekki við þegar viðvörunarkerfi fór í gang í versluninni. Í yfirlýsingu frá lögreglunni segir að verkferlum hafi ekki verið fylgt eftir rétt, annars hefðu lögregluþjónar farið á vettvang.

Hér að neðan má sjá frá blaðamannafundi lögreglunnar í London í dag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×