Frakkar segja afstöðu David Cameron hættulega Samúel Karl Ólason skrifar 28. maí 2015 22:01 David Cameron og Francois Hollande í dag. Vísir/EPA
Yfirvöld í Frakklandi hafa sent David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, viðvörun vegna afstöðu hans. Cameron ætlar sér að endursemja um aðild Bretland að Evrópusambandinu áður en þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildina verður haldin. Frakkar segja þessar ætlanir vera „hættulegar“. Utanríkisráðherra Frakklands, Laurent Fabius, sagði í dag að Frakkar myndu segja nei, heimti Bretland sérstöðu innan ESB. „Ég tel þetta ferli vera hættulegt,“ sagði Fabius í viðtali á útvarpsstöðinni Inter í Frakklandi. „Bretar eru orðnir vanir því að heyra reglulega að „Evrópa sé slæm“ og þegar sú stund kemur að þau eru beðin um að velja er hættan sú að þau segi „Evrópa er slæm“.“ Samkvæmt vef Guardian sagði utanríkisráðherran að það væri ekki hægt að ganga til liðs við fótboltafélag, en ákveða í miðjum leik að nú ætti að spila rúbbí. Hann sagði að ef Bretland yfirgæfi ESB myndi það gefa mjög slæma mynd af Evrópu. David Cameron er nú á ferðalagi þar sem hann mun heimsækja Holland, Frakkland, Pólland og Þýskaland. Þar mun hann ræða við leiðtoga ESB og biðja þá um að sýna sveigjanleika. Cameron ræddi við Francois Hollande, forseta Frakklands, í dag. Þar sagði hann að staðan eins og hún er í dag, sé óásættanleg fyrir Bretland. „Ég hef trú á því að breytingar séu mögulegar sem hagnist ekki bara Bretlandi heldur allri Evrópu,“ er haft eftir Cameron á vef BBC.
Mest lesið Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Innlent Ökumaðurinn liðlega tvítugur Innlent Öllum sundlaugum í Reykjavík lokað Innlent Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Innlent Sagðist nýlega hafa rætt við löngu látna konu sína Innlent Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Innlent Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Innlent Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Innlent Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ nálgast Flórída Erlent Réðst á fyrrverandi kærustur og aðstoðarslökkviliðsstjóra Innlent Fleiri fréttir Gætu ekki flúið þótt þau vildu það Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ nálgast Flórída Tvö eftir í leiðtogakjöri breskra íhaldsmanna Stóð af sér vantrauststillögu Þrír fá Nóbelsverðlaun fyrir að afhjúpa uppbyggingu prótína Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biden kallaði Netanjahú „tíkarson“ og „slæman gaur“ X snýr aftur í Brasilíu Hugðust ráðast á fjölda fólks á kjördag og deyja píslardauða Biden mun freista þess að leggja Netanyahu línurnar varðandi Íran Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Milton safnar aftur krafti Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Lögregla upplýsir ekki um notkun andlitsgreiningarhugbúnaðar Koma sér í skjól undan fellibylnum Milton Sjúkrahús í Kaliforníu ákært fyrir að neita óléttri konu um neyðaraðstoð Hlutu Nóbelinn fyrir framlag til vélræns náms Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Grunaði í máli Madeleine McCann sýknaður af öðrum brotum Svaraði spurningum um Netanyahu, Pútín og reynslu af skotvopnum „Þú hugsar bara: Hver var skotinn?” Ekkert lát á aðgerðum Ísraelshers gegn Hamas og Hezbollah „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Sjá meira