Innlent

Tugir tonna af matvælum liggja undir skemmdum

Samúel Karl Ólason skrifar
Í svarbréfi MAST kemur einnig fram að stofnunin hafi sótt tvisvar um undanþágu til undanþágunefndar BHM og ríkisins vegna erindis Inness. Því hefur verið hafnað í bæði skiptin.
Í svarbréfi MAST kemur einnig fram að stofnunin hafi sótt tvisvar um undanþágu til undanþágunefndar BHM og ríkisins vegna erindis Inness. Því hefur verið hafnað í bæði skiptin. Vísir/Pjetur
Mætvælastofnun hefur hafnað beiðni Inness ehf. um að stofnunin votti innflutning á búvörum frá EES-ríkjum. Félag atvinnurekenda segir að því sé ljóst að áfram muni tugir tonna af innfluttum mat liggja undir skemmdum á hafnarbakkanum vegna verkfalls opinberra starfsmanna.

Í tilkynningu segir FA að innflutningur á kjöti, ostum, hunangi og kartöflum hafi stöðvast vegna verkfallsins.

Félagið hefur áður sent MAST erindi þar sem rök hafa verið færð fyrir því að stofnunin geti vottað innfluttning þrátt fyrir verkfall dýralækna. Engin krafa sé á að dýralæknar stimpli vottorð sem gefin eru út af öðrum dýralæknum í útflutningsríkjunum og hins vegar geti yfirmenn MAST, forstjóri og yfirdýralæknir gengið í störf undirmanna sinna.

„Í svarbréfi MAST kemur fram það álit stofnunarinnar að ekki sé heimilt eða mögulegt að leita til annarra starfsmanna en dýralækna til að sinna þessu verkefni. Yfirdýralæknir sé ekki yfirmaður starfsmanna inn- og útflutningsskrifstofu stofnunarinnar, sem séu í verkfalli. Þá sé hann í sama stéttarfélagi og aðrir dýralæknar hjá stofnuninni. Forstjóri stofnuinarinnar geti ekki gengið í störf allra þeirra tæplega sextíu starfsmanna sem séu í verkfalli eða sett sig inn í verkefni þeirra og störf,“ segir í tilkynningunni.

Í svarbréfi MAST kemur einnig fram að stofnunin hafi sótt tvisvar um undanþágu til undanþágunefndar BHM og ríkisins vegna erindis Inness. Því hefur verið hafnað í bæði skiptin.

Magnús Óli Ólafsson, forstjóri Innness, bendir á í tilkynningunni að fyrirtækið hafi þegar orðið fyrir tuga milljóna króna tjóni vegna þess að MAST hafi ekki vottað innflutning búvara. Enn frekara tjón sé fyrirsjáanlegt, enda liggi vörur undir skemmdum. Yfirmenn stofnunarinnar hefðu getað gengið í störf undirmanna sinna til að bjarga verðmætum.

„Undanþágunefnd hefur breytt afstöðu sinni, þannig að nú er verið að auglýsa ferskan innlendan kjúkling í búðum. Á sama tíma er engin tilhliðrun fyrir innfluttar vörur. Við íhugum alvarlega að sækja á hendur stofnuninni okkar tjón vegna þessa máls,“ segir Magnús Óli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×