Erlent

Enn ein sprengjan sprakk í Malmö

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Sænsk lögregla að störfum. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Sænsk lögregla að störfum. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/AFP
Mildi þykir að enginn hafi slasast þegar sprengja sprakk í Limhamn í Malmö á Skáni í nótt.

Sprengjan hafði verið fest undir bíl sem gjöreyðilagðist en hún er sögð hafa verið það öflug að rúður í fjölmörgum húsum í grenndinni brotnuðu.

Lögregla rannsakar nú málið en sprengingin er sú þriðja á tæpri viku í Malmö.

Fyrst var bíll sprengdur og á þriðjudaginn síðastliðinn var handsprengju kastað á samkomuhús múslima þar sem á þriðja tug voru saman komnir til að fagna föstulokum. Einn slasaðist í þeirri sprengingu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×