Erlent

Læsti sig inni í bíl til að sýna hvað hundar ganga í gegnum

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Mathieu svitnaði mikið.
Mathieu svitnaði mikið.
NFL leikmaðurinn Tyrann Mathieu læsti sjálfan sig inni í bíl á heitum sumardegi til þess að sýna hvað hundar ganga í gegnum þegar þeir eru skildir eftir einir inni í bíl. Uppátækið er á vegum dýraverndunarsamtakanna PETA.

Mathieu entist inni í bílnum í átta mínútur en þegar hann kom út var hann kófsveittur og leið illa. „Svona raunverulega er það að vera hundur sem er læstur inni í bíl á heitum degi,“ sagði Mathieu. Hann sagði einnig að hundaeigendur ættu að gera hundinn hluta af fjölskyldunni og að það væri ekki gert með því að skilja þá eftir inni í bíl.

Sjá einnig: Gleymdi hundunum í læstum bíl í steikjandi hita við Fífuna

„Ekki koma fram við hann eins og þú myndir ekki koma fram við einhvern sem þér þykir vænt um eða einhvern sem þú elskar.“

An NFL player locked himself in a hot car to send a really powerful message

Posted by NowThis on Sunday, July 19, 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×