Aron Rafn valdi handbolta yfir fótbolta af því að það var svo kalt úti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. ágúst 2015 15:45 Aron Rafn Eðvarðsson. Vísir/EPA
Aron Rafn Eðvarðsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, skipti um bæði félag og land í sumar en hann mun verja mark danska félagsins Aalborg Håndbold á komandi vetri. Aron Rafn er að fara að hefja sitt þriðja tímabil í atvinnumennsku en fyrstu tvö árin eyddi hann hjá sænska liðinu Eskilstuna Guif. Aron Rafn mun verja mark danska liðsins ásamt Svíanum Andreas Palicka sem er kominn til Álaborgar-liðsins frá Kiel. Markvörðurinn Sören Westphal er enn hjá félaginu en hann er að koma til baka eftir krossbandsslit. Aron Rafn Eðvarðsson varði mark Haukaliðsins áður en hann fór út. Í viðtali á heimasíðu danska félagsins var hann spurður út í það af hverju hann valdi handboltann á sínum tíma. „Þegar ég var strákur þá spilaði ég bæði handbolta og fótbolta á Íslandi en á einhverjum tímapunkti þá þurfti ég að velja á milli greinanna. Ég valdi handboltann af því að mér fannst hann ver skemmtilegri og svo er handboltinn líka spilaður innandyra," sagði Aron Rafn við aalborghaandbold.dk. „Það er kalt að spila fótbolta úti á Íslandi. Handboltinn er líka mjög vinsæl íþrótt og ekki síst í bænum þar sem að ég ólst upp," sagði Aron Rafn sem er orðinn 25 ára gamall. Fyrsti keppnisleikur Arons Rafns með nýja félaginu verður föstudaginn 28. ágúst þegar Álaborgarliðið tekur á móti Skjern í fyrstu umferð dönsku deildarinnar en leikurinn fer fram í nýuppgerði höll félagsins.
Handbolti Mest lesið Kane reyndi að róa menn meðan sjúkraþjálfari ýtti leikmanni Körfubolti Mourinho meiddist á æfingu þegar leikmaður Fenerbahçe felldi hann Fótbolti Baldur: Yrði hissa ef minn sjúkraþjálfari myndi fara í svona baráttu Sport Viðar um vandræði Hattar: „Hugarfarslegt og andlegt, þetta er á báðum endum vallarins“ Körfubolti Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 104-98 | Stjörnumenn taplausir á toppi deildarinnar Körfubolti „Sóknarlega vorum við að taka alveg kexaðar ákvarðanir oft á tíðum“ Körfubolti Hefur ekki efni á sjálfum sér: „Þeir sögðu nei“ Enski boltinn Uppgjörið: Álftanes - ÍR 93-87 | Hræðilegur fjórði leikhluti varð ÍR-ingum að falli Körfubolti „Vorum ógeðslega góðir sóknarlega í tvo leikhluta“ Körfubolti ÍBV með stórsigur gegn ÍR meðan KA og Stjarnan skildu jöfn Handbolti Fleiri fréttir ÍBV með stórsigur gegn ÍR meðan KA og Stjarnan skildu jöfn Uppgjörið: ÍR - Grótta 30-18 | Fyrsti sigur ÍR-inga Haukur og félagar skammt frá toppliðunum eftir sterkan sigur Ljóshærður Bjarki Már magnaður í Meistaradeildarsigri Veszprém Sigurþrenna hjá Íslendingaliðunum Dana Björg stjörnumerkt í 35 manna hópi Íslands „Hefði viljað fá að lemja Elvar aðeins meira“ „Man ekki eftir að hafa tapað hérna“ Þorsteinn Leó öflugur í stórsigri Misjöfn úrslit hjá Íslendingunum í Evrópudeildinni Hafnfirðingar stóðu í Svíunum Uppgjörið: Valur - Melsungen 28-33 | Héldu í við þýska toppliðið Spenntur fyrir Valsleiknum: „Býst við að margir frá Selfossi og úr fjölskyldunni mæti“ Krukkuðu í handboltaheila Ásbjörns fyrir leikinn gegn Sävehof „Elvar er einn mesti stríðsmaður sem við eigum“ Haukar mæta liði í 5.000 kílómetra fjarlægð: „Rándýrt og erfitt“ Ein sú besta ólétt Ómar Ingi markahæstur í stórsigri Magdeburg Íslendingalið Gummersbach marði botnliðið Sterkur sigur stelpnanna á Selfossi KA enn á botninum eftir tap í Eyjum Haukar unnu Hanana öðru sinni og eru komnir áfram „Til fyrirmyndar hvernig stelpurnar mættu í þennan leik“ Uppgjörið: Ísland - Pólland 30-24 | Frábærar íslenskar stelpur lofa góðu fyrir EM Valsmenn náðu að jafna í lokin Einar Bragi fékk rautt spjald en liðið hans vann Guðmundur Bragi og félagar í stuði í seinni Íslensku landsliðsmennirnir hvíldir eftir átökin í Meistaradeildinni í vikunni Dana Björg leikur fyrsta landsleikinn en Sandra hvílir Afturelding á toppinn og Grótta tapar enn Sjá meira