Sport

Fyrstu konurnar í NFL-deildinni þreyttu frumraun sína á sama tíma

Kjarnakonurnar Welter og Thomas heilsasta fyrir leik.
Kjarnakonurnar Welter og Thomas heilsasta fyrir leik.
Það var söguleg stund um helgina þegar fyrstu tvær konurnar sem brutu sér leið inn í NFL-deildina voru á vellinum á sama tíma.

Jen Welter er fyrsti kvenþjálfari deildarinnar en hún er til reynslu hjá Arizona Cardinals. Sarah Thomas er svo fyrsti kvendómari deildarinnar.

Thomas var á meðal dómara í leik Arizona og Kansas City. Fyrsta verkefni beggja kvenna í deildinni og vöktu þær eðlilega mikla athygli enda söguleg stund.

Kansas vann leikinn, 34-19, en báðar konur komust vel frá sínum störfum.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×