Formúla 1

Wolff: Vélasamningur við Red Bull spennandi kostur

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ætli Wolff sé að spyrja Marko hvort Red Bull vanti vængi.
Ætli Wolff sé að spyrja Marko hvort Red Bull vanti vængi. Vísir/Getty
Yfirmaður kappakstursmála hjá Mercedes, Toto Wolff viðurkennir að það gæti verið spennandi kostur. Red Bull liðið verður hugsanlega vélalaust eftir árið 2016.

Red Bull hefur opinberlega gagnrýnt Renault fyrir vélina sem franski vélaframleiðandinn smíðaði. Renault hefur í kjölfarið ákveðið að endurmeta stöðu sína innan Formúlu 1.

Ferrari hefur þegar boðist til að skaffa Red Bull vélar og Mercedes virðist einnig reiðubúið að skoða það að sjá Red Bull fyrir vélum. Wolff segist þó hafa vissar efasemdir um að það sé sniðugt að veita samkeppnisaðila slíkan styrk.

„Það er samingur í gildi og við viljum ekki vera að skipta okkur af þeirra deilum. Ef ég set á mig vinnuhattinn og tala fyrir hönd þeirra sem vilja sá Formúlu 1 blómstra þá verð ég að segja að þetta er spennandi kostur vegna þess að það myndi koma okkur í samstarf með vörumerki sem ungt fólk hefur áhuga á, það er gott mál,“ sagði Wolff.

„Auðvitað er það ekki gott að styrkja mótherjana ef ég hugsa sem yfirmaður liðs, sérstaklega ekki lið sem kann að búa til bíla sem vinna keppnir,“ bætti Wolff við.

Helmut Marko, ráðgjafi Red Bull segir liðið vera að skoða alla möguleika.

„Við erum að skoða allt. Það er vit í orðunum aldrei segja aldrei. Við erum að leita réttu leiðarinnar,“ sagði Marko.


Tengdar fréttir

Mercedes þarf að vara sig á Ferrari

Liðsstjóri Mercedes, Toto Wolff hefur varað lið sitt við að slaka of mikið á. Wolff vill ekki hleypa Sebastian Vettel og Ferrari nær í titilbaráttunni.

Renault: Red Bull lýgur

Sambandið sem skilaði fjórum heimsmeistaratitlum í röð virðist nú leika á reiðiskjálfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×