Minnst sautján látnir vegna sprenginganna Samúel Karl Ólason skrifar 12. ágúst 2015 23:07 Sprengingarnar voru gríðarlega stórar. Vísir/AFP
Borgin Tianjin í Kína nötraði í dag þegar tvær gríðarlega stórar sprengingar urðu í vöruhúsi fyrir eldfim og hættuleg efni. Gluggar brotnuðu í margra kílómetra fjarlægð og hurðar brotnuðu af húsum. Kínverskir fjölmiðlar segja að minnst sautján séu látnir og hundruð slösuðust. Fjöldi látinna á þó líklegast eftir að hækka. „Ég hélt að þetta væri jarðskjálfti, svo ég hljóp með syni mínum án þess að fara í skóna,“ segir Zhang Siyu við AP fréttaveituna. Heimili hennar er í nokkurra kílómetra fjarlægð frá staðnum þar sem sprengingarnar urðu. „Ég áttaði mig ekki á því þetta hefði verið sprenging fyrr en ég var komin út.“ Hún segir einnig að hún hafi séð fjölda slasaðra á götum borgarinnar. Sjá einnig: Gífurleg sprenging í Tianjin í Kína Á vef Sky News segir að fyrsta sprengingin hafi verið á við að þrjú tonn af TNT hafi verið sprengd og sú seinni á við 21 tonn. Sprengingarnar sáust greinilega á jarðskjálftamælum. Íbúar borgarinnar hafa birt fjölmargar myndir á samfélagsmiðlum þar sem sjá má skemmdirnar í borginni. Tjöld hafa verið sett upp við sjúkrahús í borginni þar sem læknar annast slasaða. Tweets about tianjin
Mest lesið Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Innlent Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Innlent Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða Innlent Fær mun minni fjárstuðning frá almenningi Erlent „Við þolum ekki þetta ástand mikið lengur“ Innlent Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Innlent Tveir slasaðir í alvarlegu umferðarslysi Innlent Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Erlent Ekki allir sem geta leitað í bakland eftir barnapössun Innlent Skæð fuglaflensa í hröfnum og hettumáfum Innlent Fleiri fréttir Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Fær mun minni fjárstuðning frá almenningi Gerðu andlitsmynd af stærstu pöddu jarðsögunnar Þrettán látist vegna Marburg-veiru og ekkert bóluefni til Hefur ekki enn þorað út í morgun Enn varað við ofsaveðri en hreinsunarstörf hafin Fréttamenn í bölvuðum vandræðum í óveðrinu Skotárás við ísraelskt fyrirtæki í Gautaborg Flugstjórinn lést í miðri flugferð Biden og Netanyahu ræddu aðgerðir Ísrael gegn Íran Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Milljónir án rafmagns og nokkrir látnir eftir að Milton gekk á land Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Ísland sagt „heimili vefþrjóta og einkennisþjófnaðar“ Gætu ekki flúið þótt þau vildu Tvö eftir í leiðtogakjöri breskra íhaldsmanna Stóð af sér vantrauststillögu Þrír fá Nóbelsverðlaun fyrir að afhjúpa uppbyggingu prótína Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biden kallaði Netanjahú „tíkarson“ og „slæman gaur“ X snýr aftur í Brasilíu Hugðust ráðast á fjölda fólks á kjördag og deyja píslardauða Biden mun freista þess að leggja Netanyahu línurnar varðandi Íran Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Milton safnar aftur krafti Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Sjá meira