Sérstakur saksóknari hefur fellt niður Samherjamálið Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 4. september 2015 18:04
Sérstakur saksóknari hefur fellt niður sakamál á hendur Þorsteini Má Baldvinssyni forstjóra Samherja og þriggja lykilstarfsmanna fyrirtækisins þar sem grunur lék á að þeir hefðu brotið gegn lögum og reglum um gjaldeyrismál. Þorsteinn segir málið hafa haft gríðarlegt tjón í för með sér fyrir fyrirtækið en rannsóknin stóð yfir í á fjórða ár. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Í lok mars 2012 var gerð húsleit í höfuðstöðvum Samherja bæði á Akureyri og í Reykjavík. Það voru starfsmenn Seðlabanka Íslands sem framkvæmdu húsleitina vegna gruns þeirra um brot á lögum og reglum um gjaldeyrismál. Í framhaldinu kærði Seðlabankinn Samherja og tengd fyrirtæki fyrir brot gegn gjaldeyrislögum til Embætti sérstaks saksóknara. Embættið sendi málið aftur til Seðlabankans þar sem ekki var heimilt kæra fyrirtæki. Í framhaldinu kærði bankinn einstaklinga innan fyrirtækisins það er Þorstein Má Baldvinsson forstjóra fyrirtækisins og þrjá aðra lykilstarfsmenn fyrir að brjóta gegn gjaldeyrishöftunum. Meint brot vörðuð sektum eða allt að tveggja ár afangelsi. Við tók rannsókn á málinu sem sem lauk ekki fyrr en í vor rúmur þremur árum eftir að hún hófst. Í dag var svo Þorsteini Má og hinum sem höfðu réttarstöðu grunaðra í málinu tilkynnt að málið hefði verið fellt niður. Þorsteinn fagnar niðurstöðunni.
Samherji og Seðlabankinn Mest lesið Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Innlent Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Innlent Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Erlent Dagur hvetur alla Sjálfstæðismenn til að strika sig út Innlent Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Innlent Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Innlent Fleiri fréttir Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Tvær á toppnum Gasmengun helsta hættan í Grindavík „Það má Guð vita“ Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Enn talsverður kraftur í eldgosinu Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Kjörin í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins Jane Goodall hvetur stjórnvöld til að beita sér gegn hvalveiðum Opna Grindavík á ný Sérfræðingar rýna í stöðuna á lokasprettinum Ráðgjafar- og greiningarstöð fjársvelt meðan ásókn í þjónustu eykst Töluverðar líkur á leiðindaveðri á kjördag Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Rannsókn lokið á stunguárásinni við Skúlagötu Fundað í Karphúsi og hraunið kælt á Reykjanesi Sjúkratryggingar auglýsa eftir rekstraraðilum hjúkrunarheimila Góður árangur af hraunkælingu við varnargarðana Sjá meira