Lærisveinar Alfreðs höfðu betur gegn Rúnari og Ólafi Kristinn Páll Teitsson skrifar 2. september 2015 22:45 Alfreð Gíslason. Vísir/Getty
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel höfðu betur gegn Ólafi Andrési Guðmundssyni, Rúnari Kárasyni og félögum í Hannover-Burgdorf í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Leikmenn Kiel lentu í töluverðum vandræðum gegn Hannover en náðu loksins tökum á leiknum í seinni og unnu að lokum fjögurra marka sigur. Hannover var einu marki yfir í hálfleik í stöðunni 14-13 og var með þriggja marka forskoti þegar seinni hálfleikur var hálfnaður í stöðunni 23-20. Eftir það hrukku leikmenn Kiel í gang en þeir höfðu betur síðustu fimmtán mínúturnar 13-6 og lauk leiknum með 33-29 sigri Kiel. Rúnar Kárason komst á blað með eitt mark í leiknum en Ólafur kom ekki við sögu í liði Hannover Burgdorf. Í fyrri leik kvöldsins vann Rhein-Neckar Löwen stórsigur á Eisenach á heimavelli. Rhein-Neckar Löwen var tíu mörkum yfir í hálfleik og hleypti Eisenach aldrei nálægt sér í seinni hálfleik og vann að lokum 14 marka sigur, 39-25. Ólafur Bjarki Ragnarsson náði að setja þrjú mörk á Löwen en í liði Löwen náði Alexander Petersson að skora fjögur mörk og þá bætti Stefán Rafn Sigurmannsson við einu marki. Í franska deildarbikarnum tapaði Nimes með Ásgeir Örn Hallgrímsson og Snorra Stein Guðjónsson naumlega, 33-34, gegn Toulouse á heimavelli Nimes. Snorri og Ásgeir voru í stórum hlutverkum í kvöld en Ásgeir skoraði átta mörk úr aðeins tólf skotum en Snorri setti fjögur mörk.
Handbolti Mest lesið Kane reyndi að róa menn meðan sjúkraþjálfari ýtti leikmanni Körfubolti Mourinho meiddist á æfingu þegar leikmaður Fenerbahçe felldi hann Fótbolti Baldur: Yrði hissa ef minn sjúkraþjálfari myndi fara í svona baráttu Sport Viðar um vandræði Hattar: „Hugarfarslegt og andlegt, þetta er á báðum endum vallarins“ Körfubolti Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 104-98 | Stjörnumenn taplausir á toppi deildarinnar Körfubolti „Sóknarlega vorum við að taka alveg kexaðar ákvarðanir oft á tíðum“ Körfubolti Hefur ekki efni á sjálfum sér: „Þeir sögðu nei“ Enski boltinn Uppgjörið: Álftanes - ÍR 93-87 | Hræðilegur fjórði leikhluti varð ÍR-ingum að falli Körfubolti „Vorum ógeðslega góðir sóknarlega í tvo leikhluta“ Körfubolti ÍBV með stórsigur gegn ÍR meðan KA og Stjarnan skildu jöfn Handbolti Fleiri fréttir ÍBV með stórsigur gegn ÍR meðan KA og Stjarnan skildu jöfn Uppgjörið: ÍR - Grótta 30-18 | Fyrsti sigur ÍR-inga Haukur og félagar skammt frá toppliðunum eftir sterkan sigur Ljóshærður Bjarki Már magnaður í Meistaradeildarsigri Veszprém Sigurþrenna hjá Íslendingaliðunum Dana Björg stjörnumerkt í 35 manna hópi Íslands „Hefði viljað fá að lemja Elvar aðeins meira“ „Man ekki eftir að hafa tapað hérna“ Þorsteinn Leó öflugur í stórsigri Misjöfn úrslit hjá Íslendingunum í Evrópudeildinni Hafnfirðingar stóðu í Svíunum Uppgjörið: Valur - Melsungen 28-33 | Héldu í við þýska toppliðið Spenntur fyrir Valsleiknum: „Býst við að margir frá Selfossi og úr fjölskyldunni mæti“ Krukkuðu í handboltaheila Ásbjörns fyrir leikinn gegn Sävehof „Elvar er einn mesti stríðsmaður sem við eigum“ Haukar mæta liði í 5.000 kílómetra fjarlægð: „Rándýrt og erfitt“ Ein sú besta ólétt Ómar Ingi markahæstur í stórsigri Magdeburg Íslendingalið Gummersbach marði botnliðið Sterkur sigur stelpnanna á Selfossi KA enn á botninum eftir tap í Eyjum Haukar unnu Hanana öðru sinni og eru komnir áfram „Til fyrirmyndar hvernig stelpurnar mættu í þennan leik“ Uppgjörið: Ísland - Pólland 30-24 | Frábærar íslenskar stelpur lofa góðu fyrir EM Valsmenn náðu að jafna í lokin Einar Bragi fékk rautt spjald en liðið hans vann Guðmundur Bragi og félagar í stuði í seinni Íslensku landsliðsmennirnir hvíldir eftir átökin í Meistaradeildinni í vikunni Dana Björg leikur fyrsta landsleikinn en Sandra hvílir Afturelding á toppinn og Grótta tapar enn Sjá meira