Erlent

Fimm látnir í snjóflóði í Ölpunum

Atli Ísleifsson skrifar
Frá Ecrins þjóðgarðinum.
Frá Ecrins þjóðgarðinum. Vísir/Getty
Fimm fjallgöngumenn eru látnir og tveggja er saknað eftir að hafa orðið undir snjóflóði í frönsku Ölpunum. AFP greinir frá.

Snjóflóðið varð í hlíðum fjallsins Dôme de neige des Ecrin í þjóðgarðinum Ecrins í austurhluta landsins.

Vindasamt var þegar flóðið féll, auk þess að nýr snjór hefur fallið síðustu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×