Eiginmaðurinn reyndi ítrekað að kyssa húshjálpina Samúel Karl Ólason skrifar 9. október 2015 12:50 Konan reyndi ítrekað að komast undan atlotum mannsins.
Sádi-arabísk kona gæti átt yfir höfði sér fangelsisdóm eftir að hún birti myndband af eiginmanni sínum á Youtube. Myndbandið er af manninum þar sem hann virðist beita húshjálp þeirra hjóna kynferðislegu ofbeldi. Á myndbandinu má sjá konuna ítrekað reyna að komast undan atlotum mannsins. Konan setti myndbandið á Youtube, með yfirskriftinni: Hans minnsta refsing er að vera smánaður.Samkvæmt Telegraph segja lögfræðingar þó að konan gæti átt von á hárri sekt fyrir meiðyrði eða farið í fangelsi í eitt ár. Kassamerkið #SaudiWomanCatchesHusbandCheating hefur notið mikilla vinsælda á Twitter frá því að myndbandið var birt. Langflestir þeirra sem notað hafa merkið, lýstu yfir stuðningi við eiginkonuna. Stjórnvöld Sádi-Arabíu eru gífurlega íhaldssöm og hafa konur átt erfitt með að öðlast aukin réttindi þar. Þær mega sem dæmi ekki keyra og verða að sækja um leyfi frá karlkyns fjölskyldumeðlimum til að ferðast eða vinna.Bág staða vinnukvenna Þá hefur myndbandið vakið athygli á bágri stöðu kvenna sem vinna við húshjálp, sem iðulega eru innflytjendur með nánast engin réttindi í Sádi-Arabíu. Mál indverskrar farandverkakonu í Sádi-Arabíu hefur til dæmis vakið mikla athygli. Hún vann sem vinnukona og reyndi að flýja undan áreiti vinnuveitenda síns. Hann er sagður hafa refsað henni með því að höggva af henni aðra höndina. Yfirvöld í Indlandi hafa farið fram á svör frá Sádi-Arabíu en málið hefur valdið mikilli reiði. Í september þurfti erindreki Sádi-Arabíu að yfirgefa Indland eftir að hann var sakaður um að nauðga tveimur vinnukonum frá Nepal ítrekað og misþyrma þeim. #SaudiWomanCatchesHusbandCheating Tweets
Mest lesið Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Innlent Ökumaðurinn liðlega tvítugur Innlent Öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu lokað Innlent Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ nálgast Flórída Erlent Gætu ekki flúið þótt þau vildu Erlent Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Innlent Sagðist nýlega hafa rætt við löngu látna konu sína Innlent Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Innlent Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Innlent Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Ísland sagt „heimili vefþrjóta og einkennisþjófnaðar“ Gætu ekki flúið þótt þau vildu Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ nálgast Flórída Tvö eftir í leiðtogakjöri breskra íhaldsmanna Stóð af sér vantrauststillögu Þrír fá Nóbelsverðlaun fyrir að afhjúpa uppbyggingu prótína Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biden kallaði Netanjahú „tíkarson“ og „slæman gaur“ X snýr aftur í Brasilíu Hugðust ráðast á fjölda fólks á kjördag og deyja píslardauða Biden mun freista þess að leggja Netanyahu línurnar varðandi Íran Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Milton safnar aftur krafti Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Lögregla upplýsir ekki um notkun andlitsgreiningarhugbúnaðar Koma sér í skjól undan fellibylnum Milton Sjúkrahús í Kaliforníu ákært fyrir að neita óléttri konu um neyðaraðstoð Hlutu Nóbelinn fyrir framlag til vélræns náms Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Grunaði í máli Madeleine McCann sýknaður af öðrum brotum Svaraði spurningum um Netanyahu, Pútín og reynslu af skotvopnum „Þú hugsar bara: Hver var skotinn?” Ekkert lát á aðgerðum Ísraelshers gegn Hamas og Hezbollah „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Sjá meira