Erlent

Birta myndband af grunuðum nauðgara með fórnarlambið í fanginu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Skjáskot úr myndbandinu þar sem maðurinn sést halda á konunni.
Skjáskot úr myndbandinu þar sem maðurinn sést halda á konunni.
Lögreglan í Englandi hefur birt myndband af manni sem grunaður er um nauðgun í Leeds í ágúst. Á myndbandinu sést maður labba burt með konu í fanginu sem grunur leikur á að hann hafi síðan nauðgað.

Myndbandið er nú birt í von um að lögreglunni takist að bera kennsl á manninn. Samkvæmt lögreglunni var konan að labba í leigubíl eftir að hafa verið úti að skemmta sér þegar maðurinn nálgaðist hana.

Hann talaði við hana og labbaði með henni áður en hann tók hana í fangið og fór með hana á afvikinn stað þar sem hann á að hafa nauðgað henni.

Nokkur myndskeið hafa verið sett saman í eitt úr öryggismyndavélum víðs vegar um Leeds en myndbandið má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×