Erlent

Kennsla við Lundarháskólann hefst að nýju í fyrramálið

Bjarki Ármannsson skrifar
Töluverður viðbúnaður var við skólann í dag.
Töluverður viðbúnaður var við skólann í dag. VÍSIR/GOOGLEMAPS
Háskólinn í Lund var opnaður aftur síðdegis í dag og hefst kennsla á ný í fyrramálið. Skólanum var í dag lokað af öryggisástæðum vegna hótunar sem barst nemendum í gærmorgun.

Í tilkynningu á vef háskólans segir að hótunin sem barst nemendum á snjallsímaforritinu Jodel hafi ekki verið einsdæmi, heldur hafi slíkar hótanir borist nemendum víðsvegar um Svíþjóð. Í ljósi þess hafi ákvörðun um að opna skólann á ný verið tekin í samráði við lögreglu. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×