Erlent

Bresk herþyrla fórst í Kabúl

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/epa
Fimm létust og sjö slösuðust þegar bresk herþyrla fórst í Afganistan í dag. Vélin, sem er af gerðinni Puma Mk2, var við það að lenda við höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins í Kabúl þegar hún hrapaði. Orsakir slyssins eru ókunnar að svo stöddu.

Breska varnarmálaráðuneytið segir að um slys hafi verið að ræða og hyggst ekki gefa frekari upplýsingar um málið fyrr en rannsókn þess lýkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×