Erlent

Norsk hjón fundust látin í Rússlandi

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Lögregla vill ekki segja til um hvort sakamál sé að ræða fyrr en búið er að kryfja lík hinna látnu.
Lögregla vill ekki segja til um hvort sakamál sé að ræða fyrr en búið er að kryfja lík hinna látnu. mynd/googlemaps
Norsk hjón á þrítugs- og fertugsaldri fundust á fimmtudag látin í íbúð í bænum Murmansk í Rússlandi. Dánarorsök þeirra er ókunn, en rússnesk og norsk lögregluyfirvöld rannsaka nú málið, að því er fram kemur í frétt norska dagblaðsins Verdens Gang.

Hjónin voru búsett í Suður-Varanger en voru á ferðalagi í Murmansk ásamt börnum þeirra tveimur. Börnin voru í heimsókn hjá fjölskyldumeðlimum þegar foreldrar þeirra fundust.

Lögregla vill ekki segja til um hvort sakamál sé að ræða fyrr en búið er að kryfja lík hinna látnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×