Sport

Menn í minkapels og hvítum jakkafötum standa ekki í átökum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ray Lewis í vinnunni fyrir ESPN.
Ray Lewis í vinnunni fyrir ESPN. vísir/getty
Margir halda að NFL-goðsögnin Ray Lewis hafi komist upp með tvöfalt morð í byrjun árs árið 2000.

Richard Lollar og Jacinth Baker voru stungin til bana fyrir utan partí sem var haldið eftir Super Bowl-leikinn 20. janúar í Atlanta.

Lewis var grunaður um morðin og það sem fær marga til að trúa því að hann sé sekur er sú staðreynd að hvítu jakkafötin sem hann var í þetta kvöld hafa aldrei fundist.

Lewis var að gefa út ævisögu sína og hann talar þar um ásakanirnar í sinn garð. Hann gefur meðal annars upp sérstaka ástæðu fyrir því af hverju hann hefði ekki getað myrt þetta fólk.

„Ég var í mínu fínasta pússi. Hvít jakkaföt, minkapels og skartgripir. Ég var aldrei að fara að taka þátt í einhverjum átökum í svona klæðnaði. Það er almenn regla er menn klæða sig upp og fara út á lífið. Því fínni sem maður er því minni líkur eru á því að maður fari að standa í slagsmálum," skrifar Lewis.

Hann var handtekinn og ákærður í málinu ásamt tveim öðrum. Hann samdi sig svo frá málinu gegn því að vera vitni ákæruvaldsins gegn hinum tveimur. Þeir voru báðir sýknaðir og málið er enn óupplýst.

Ári eftir þetta mál náði Lewis að vinna Super Bowl og var valinn verðmætasti maður leiksins. Hann efnaðist svo um 10 milljarða króna í deildinni og vann titilinn aftur er hann var orðinn 37 ára gamall. Hann starfar í dag sem sjónvarpsmaður fyrir ESPN.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×