Sport

Gefst upp í baráttunni gegn NFL-deildinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Cam Heyward með Iron Head undir augunum.
Cam Heyward með Iron Head undir augunum. vísir/getty
Cameron Heyward mun hætta að heiðra minningu föður síns á vellinum með Pittsburgh Steelers.

NFL-deildin hefur í tvígang sektað hann um milljónir fyrir að skrifa orðin „Iron Head" undir augunum í leikjum. Það gerði hann til að heiðra föður sinn sem lést úr krabbameini árið 2006.

Heyward átti símafund með NFL-deildinni í gær þar sem samkomulagi var náð um að hann heiðri föður sinn á annan hátt. Hluti samkomulagsins fól líka í sér að deildin lækkaði sektirnar gegn leikmanninum.

Leikmaðurinn segist vera liðsmaður og hafi því ekki áhuga á því að vera að draga óþarfa athygli að sér og liðinu.

Stuðningsmenn liðsins geta aftur á móti styrkt hann, sem og barnaspítal,a með því að kaupa svartan plástur með orðunum „Iron Head" eins og Heyward bar.

Má því búast við því að fjöldi áhorfenda mæti þannig á næsta leik og styðji þar með við Heyward og heiðri minningu föður hans í leiðinni.

NFL

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×