Sport

Snýr til baka með fjóra putta og sérhannaðan hanska

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jason Pierre-Paul í leik með Giants.
Jason Pierre-Paul í leik með Giants. vísir/getty
Einn sterkasti varnarmaður NY Giants í NFL-deildinni, Jason Pierre-Paul, hefur ekkert spilað með Risunum í vetur enda slasaði hann sig alvarlega síðasta sumar.

Hann var þá að fíflast með flugelda sem síðan sprakk í hendinni á honum. Fjarlægja varð vísifingur og aðrir puttar voru illa farnir. Fór meðal annars ofan af þumalfingri og löngutöng.

Ef Pierre-Paul fær tækifærið um helgina þá mun hann mæta til leiks með sérstakan hans fyrir fjóra putta sem er hannaður af starfsmönnum Giants. Hann hefur verið að prófa ýmsar útgáfur á æfingum upp á síðkastið.

Hann missti samning sinn við félagið eftir slysið en samdi upp á nýtt á dögunum.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×