Sport

Dýraverndunarsamtök brjáluð af því Bryant fékk sér apa

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Dez Bryant er hress.
Dez Bryant er hress. vísir/getty
„Apar eiga heima í sína náttúrulega umhverfi en ekki í höndunum á ruðningsleikmönnum sem vilja líta vel út á Instagram," sagði í yfirlýsingu frá PETA sem var ekki ánægt með að NFL-leikmaðurinn Dez Bryant, leikmaður Dallas Cowboys, hefði fengið sér lítinn apa sem gæludýr.

Bryant er með skrautlegri mönnum í NFL-deildinni og dýraverndunarsamtökin voru ekki ánægð er þau sáu hann með apann sem hann hefur skírt Dallas Bryant.

Lögreglan rannsakaði málið eftir kvörtun PETA en fékk þær upplýsingar að apinn væri ekki á heimili Bryant. Þá var málinu einfaldlega lokað af þeirra hálfu.

PETA mun þó líklega ekki sætta sig við þessi einföldu málalok enda vita þeir ekki hvar dýrið er nákvæmlega niðurkomið núna.

Þjálfari Kúrekanna, Jason Garrett, var spurður út í málið. Hann sagðist kannast við að dez ætti apa en sagði hann ekki hafa komið á æfingu.

My new best friend.... Dallas Bryant world #throwupthex

A photo posted by Dez Bryant (@dezbryant) on

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×