Erlent

Kim Jong-un ferðast um með einkasalerni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Kim Jong-un
Kim Jong-un vísir/getty
Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, ferðast um með sitt eigið salerni þegar hann fer um landið og kannar herstöðvar og ríkisreknar verksmiðjur.

Greint er frá málinu á vef Guardian og er þar vitnað í norður-kóreska fjölmiðla.

 

„Það er ekki aðeins ferðasalerni í einkalest Kim Jong-un heldur í öllum bílum sem hann fer um með og einnig í farartækjum sem eru sérstaklega útbúin til að fara um fjalllendi og keyra í snjó,“ er haft eftir heimildamanni.

 

Nokkur farartæki eru í bílalest leiðtogans svo almenningur veit aldrei í hvaða bíl hann er og svo er ferðasalernið í sérstökum bíl.

Annar heimildamaður sagði það „óhugsandi“ fyrir Kim Jong-un að nota almenningssalerni á ferðum sínum um landið og þess vegna færi hann um með sitt eigið salerni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×