Sport

Augnapot kostaði 42 milljónir | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Aqib Talib getur stundum farið fram úr sér þó góður leikmaður sé.
Aqib Talib getur stundum farið fram úr sér þó góður leikmaður sé. vísir/getty
Aqib Talib, bakvörður Denver Broncos í NFL-deildinni í amerískum fótbolta, gerði einn heimskulegasta hlut sem sést hefur í íþróttaheiminum á þessu ári á sunnudaginn.

Þegar Denver mátti alls ekki við því að fá á sig víti undir lok leiksins gegn Indianapolis Colts í sjónvarpsleik helgarinnar á Stöð 2 Sport á sunnudaginn tók Talib upp á því að pota í augað á mótherja sínum.

Denver kom inn í leikinn sem eitt af fjórum ósigruðum liðum deildarinnar, en með hjálp Talib tókst Indianapolis að verða fyrsta liðið til að fella Peyton Manning og félaga.

Vonn Miller, samherji Talibs, og Dwayne Allen, leikmaður Colts, áttu í smá orðaskiptum eins og gerist og gengur í NFL. Talib ákvað þó að blanda sér í leikinn og pota þéttingsfast í augað á Allen.

Fyrir það fékk hann auðvitað stórt víti sem fór langt með að tryggja Colts sigurinn. Ótrúlegt en satt var Talib þó ekki sparkað út úr húsinu.

Aganefnd NFL er búin að ákveða að Talib fær eins leiks bann fyrir augnapotið og því verður hann sektaður um laun fyrir einn leik. Frá þessu greinir ESPN.

Augnapotið kostar hann því 42 milljónir króna sem er sú upphæð sem hann fær fyrir hvern leik miðað við 654 milljóna króna grunnlaun. Talib er nefnilega einn besti varnarmaður deildarinnar og á risasamningi hjá Denver Broncos.

„Þeir hafa fullan rétt á að refsa mér og mér finnst ég eiga skilið þessa refsingu. Ég ætlaði ekki að pota í augað á honum eins og þið sjáið. Þetta var óviljaverk,“ sagði Talib við fréttamenn inn í búningsklefa eftir leikinn.

Óviljaverk? Hér má sjá það helsta úr leiknum en atvikið sem um ræðir kemur eftir fjórar mínútur.

NFL

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×