Cameron vill að þingið samþykki hernað Guðsteinn Bjarnason skrifar 27. nóvember 2015 07:00 David Cameron gerði grein fyrir áformum sínum á þingi í gær. Fréttablaðið/EPA
Forsætisráðherra Bretlands hvetur breska þingið til að fallast á loftárásir á vígasveitir Íslamska ríkisins í Sýrlandi. „Ef ekki nú, hvenær þá?“ spurði David Cameron forsætisráðherra í ávarpi sínu á þingi í gær. Cameron segir engan vafa leika á því að Daish-samtökin svonefndu, sem kalla sig Íslamska ríkið, séu hættuleg íbúum Bretlands, auk þess sem þau ógni lífi milljóna manna í Írak, Sýrlandi og Líbíu. „Því lengur sem Íslamska ríkið fær að dafna í Sýrlandi, því meiri verður hættan sem stafar af því,“ segir í minnisblaði um hugsanlegar aðgerðir gegn Íslamska ríkinu, bæði pólitískar og hernaðarlegar, sem Cameron birti áður en hann ávarpaði þingið. „Það væri rangt af Bretlandi að fela öðrum löndum öryggi okkar eins og þau væru undirverktakar, og búast við því að flugmenn annarra þjóða beri álagið og áhættuna af því að ráðast á Íslamska ríkið í Sýrlandi til að koma í veg fyrir hryðjuverk hér í Bretlandi,“ segir í minnisblaðinu. Almennt virtust þingmenn taka nokkuð vel í þessar hugmyndir Camerons, en spurðu þó sumir hvernig Cameron hafi hugsað sér að leiða þennan hernað til lykta. Ný skoðanakönnun frá breska markaðsrannsóknafyrirtækinu YouGov sýnir að verulegur stuðningur er á meðal Breta um hernaðaraðgerðir í Sýrlandi. Þannig eru 59 prósent Breta fylgjandi loftárásum, en aðeins 20 prósent andvíg. Og 41 prósent er fylgjandi en 34 prósent andvíg því að breskir og bandarískir hermenn verði sendir til Sýrlands að berjast við vígamenn Íslamska ríkisins í landhernaði í Sýrlandi. Loks eru 39 prósent fylgjandi því en 34 prósent andvíg að breskir og bandarískir hermenn verði sendir aftur til Íraks til að berjast við vígasveitirnar þar. François Hollande Frakklandsforseti hefur átt fundi með leiðtogum Bandaríkjanna, Rússlands, Bretlands og Þýskalands til að safna liði, og fengið góðar undirtektir. Breskar herþotur hafa reyndar nú þegar verið notaðar í meira en eitt ár til að varpa sprengjum á vígasveitir Íslamska ríkisins í Sýrlandi. Bandaríkin, Frakkland og nú síðast Rússland hafa sömuleiðis gert fjöldann allan af loftárásum á vígasveitirnar, sem hafa hreiðrað um sig á stórum svæðum í Sýrlandi og Írak.
Mest lesið Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Innlent Margir í vandræðum í Kömbunum Innlent Milton safnar aftur krafti Erlent Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Erlent Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Erlent Ýmsar áhyggjur varðandi flóttamenn í JL-húsinu Innlent Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Erlent Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Innlent Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag Innlent Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni Innlent Fleiri fréttir Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Milton safnar aftur krafti Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Lögregla upplýsir ekki um notkun andlitsgreiningarhugbúnaðar Koma sér í skjól undan fellibylnum Milton Sjúkrahús í Kaliforníu ákært fyrir að neita óléttri konu um neyðaraðstoð Hlutu Nóbelinn fyrir framlag til vélræns náms Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Grunaði í máli Madeleine McCann sýknaður af öðrum brotum Svaraði spurningum um Netanyahu, Pútín og reynslu af skotvopnum „Þú hugsar bara: Hver var skotinn?” Ekkert lát á aðgerðum Ísraelshers gegn Hamas og Hezbollah „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sjá meira