Erlent

Fjórir teknir af lífi vegna árásarinnar á skóla í Peshawar

Atli Ísleifsson skrifar
Fórnarlömb árásarinnar voru að stórum hluta börn.
Fórnarlömb árásarinnar voru að stórum hluta börn. Vísir/AFP
Fjórir menn sem tengdust árásinni á herskóla í pakistönsku borginni Peshawar í desember á síðasta ári hafa verið teknir af lífi. Rúmlega 150 manns féllu í árásinni, aðallega börn.

Í frétt BBC kemur fram að herdómstóll hafi dæmt mennina – Maulvi Abdus Salam, Hazrat Ali, Mujeebur Rehman og Sabeel – til dauða og voru þeir teknir af lífi með hengingu.

Vígamenn Talibana réðust á skólann þann 16. desember síðastliðinn og vakti árásinn mikinn óhug í Pakistan og víðar.

Í kjölfar árásarinnar brugðust pakistönsk stjórnvöld við með því að ráðast í umfangsmiklar aðgerðir gegn íslönskum vígamönnum og að koma á sérstökum herdómstólum til að dæma í málum grunaðra. Þá voru fyrstu dauðadómarnir kveðnir upp í landinu í sex ár.

Mennirnir voru teknir af lífi snemma í morgun í fangelsi í bænum Kohat í norðvesturhluta Pakistans.


Tengdar fréttir

Þetta eru mennirnir sem myrtu 132 börn

Myndirnar fylgdu tilkynningu sem sagði ódæðið í Peshawar réttlætanlegt þar sem her Pakistan hafi drepið konur þeirra og börn um árabil.

Drápu hátt á annað hundrað skólabarna

Pakistanska talibanahreyfingin lýsti yfir ábyrgð sinni á fjöldamorðum í skóla í Peshawar. Árásin hefur verið fordæmd af þjóðarleiðtogum víða um heim.

Þriggja daga þjóðarsorg í Pakistan

Íbúar í pakistönsku borginni Peshawar eru byrjaðir að grafa alla þá sem létust í árás talibana á skóla í borginni fyrr í dag. Alls létust 132 börn í árásinni og níu fullorðnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×