Ólafur skoraði fimm mörk í 18. sigri Kristianstad í röð Tómas Þo´r Þóraðrson skrifar 22. desember 2015 19:47 Ólafur skoraði fimm mörk í kvöld. mynd/kristianstad
Ólafur Guðmundsson, landsliðsmaður í handbolta, og félagar hans í Kristianstad halda áfram að drottna yfir sænsku úrvalsdeildinni í handbolta. Kristianstad er enn með fullt hús í deildinni en liðið vann 18. deildarleikinn í röð í kvöld þegar liðið lagði Ystads auðveldlega á heimavelli, 32-21. Ólafur hefur spilað mjög vel fyrir Kristianstad síðan hann gekk aftur í raðir liðsins frá Þýskalandi en hann skoraði fimm mörk í kvöld. Kristianstad er með 36 stig eftir 18 umferðir en Alingsås er í öðru sæti með 29 stig eftir sigur í kvöld. Íslendingarnir í liði Ricoh klúðruðu ekki skoti í 22-25 tapi gegn lærisveinum Kristjáns Andréssonar í Guif í kvöld. Tandri Mán Konráðsson skoraði tvö mörk úr tveimur skotum fyrir Ricoh og Magnús Óli Magnússon eitt mark úr eina skotinu sem hann tók í leiknum. Forysta Guif frá Eskilstuna var örugg allan leikinn en liðið var 19-12 yfir í hálfleik og náði Ricoh aldrei að ógna gestunum almennilega. Línumaðurinn Atli Ævar Ingólfsson skoraði svo eitt mark úr tveimur skotum fyrir Sävehof sem gerði dramatískt jafntefli við Karlskrona á útivelli í kvöld, 27-27. Jafnt var á öllum tölum frá 24-24 en síðustu sex mínútur leiksins voru æsispennandi. Ole Forsell tryggði gestunum annað stigið með marki þegar 26 sekúndur voru eftir. Ricoh féll niður úr tíunda sætinu í það ellefta vegna tapsins í kvöld en Guif er í níunda sæti deildarinnar með 18 stig, tveimur stigum frá sæti í úrslitakeppninni þegar 18 umferðum er lokið.
Handbolti Mest lesið Kane reyndi að róa menn meðan sjúkraþjálfari ýtti leikmanni Körfubolti Söguleg stund þegar tvær íslenskar stelpur komust á sama verðlaunapall Sport Mourinho meiddist á æfingu þegar leikmaður Fenerbahçe felldi hann Fótbolti Baldur: Yrði hissa ef minn sjúkraþjálfari myndi fara í svona baráttu Sport Viðar um vandræði Hattar: „Hugarfarslegt og andlegt, þetta er á báðum endum vallarins“ Körfubolti Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 104-98 | Stjörnumenn taplausir á toppi deildarinnar Körfubolti „Sóknarlega vorum við að taka alveg kexaðar ákvarðanir oft á tíðum“ Körfubolti Hefur ekki efni á sjálfum sér: „Þeir sögðu nei“ Enski boltinn Dagskráin í dag: KR til Keflavíkur áður en Körfuboltakvöld tekur við Sport „Vorum ógeðslega góðir sóknarlega í tvo leikhluta“ Körfubolti Fleiri fréttir ÍBV með stórsigur gegn ÍR meðan KA og Stjarnan skildu jöfn Uppgjörið: ÍR - Grótta 30-18 | Fyrsti sigur ÍR-inga Haukur og félagar skammt frá toppliðunum eftir sterkan sigur Ljóshærður Bjarki Már magnaður í Meistaradeildarsigri Veszprém Sigurþrenna hjá Íslendingaliðunum Dana Björg stjörnumerkt í 35 manna hópi Íslands „Hefði viljað fá að lemja Elvar aðeins meira“ „Man ekki eftir að hafa tapað hérna“ Þorsteinn Leó öflugur í stórsigri Misjöfn úrslit hjá Íslendingunum í Evrópudeildinni Hafnfirðingar stóðu í Svíunum Uppgjörið: Valur - Melsungen 28-33 | Héldu í við þýska toppliðið Spenntur fyrir Valsleiknum: „Býst við að margir frá Selfossi og úr fjölskyldunni mæti“ Krukkuðu í handboltaheila Ásbjörns fyrir leikinn gegn Sävehof „Elvar er einn mesti stríðsmaður sem við eigum“ Haukar mæta liði í 5.000 kílómetra fjarlægð: „Rándýrt og erfitt“ Ein sú besta ólétt Ómar Ingi markahæstur í stórsigri Magdeburg Íslendingalið Gummersbach marði botnliðið Sterkur sigur stelpnanna á Selfossi KA enn á botninum eftir tap í Eyjum Haukar unnu Hanana öðru sinni og eru komnir áfram „Til fyrirmyndar hvernig stelpurnar mættu í þennan leik“ Uppgjörið: Ísland - Pólland 30-24 | Frábærar íslenskar stelpur lofa góðu fyrir EM Valsmenn náðu að jafna í lokin Einar Bragi fékk rautt spjald en liðið hans vann Guðmundur Bragi og félagar í stuði í seinni Íslensku landsliðsmennirnir hvíldir eftir átökin í Meistaradeildinni í vikunni Dana Björg leikur fyrsta landsleikinn en Sandra hvílir Afturelding á toppinn og Grótta tapar enn Sjá meira