Menning

Yrsa og Arnaldur gefa kórónurnar ekki eftir

Jakob Bjarnar skrifar
Ýmsir kallaðir en fáir útvaldir. Konungshjónin sitja sem fastast í hásætum sínum þó ýmsir hafi reynt að velta þeim úr sessi; ákafastur Gunnar Helgason.
Ýmsir kallaðir en fáir útvaldir. Konungshjónin sitja sem fastast í hásætum sínum þó ýmsir hafi reynt að velta þeim úr sessi; ákafastur Gunnar Helgason.
Þá liggur fyrir síðasti bóksölulistinn fyrir jól. Hann tekur til bóksölu dagana 14. til 20. desember. Nú, þegar svo skammt er til jóla, liggja línur fyrir. Fjölmargir rithöfundar hafa ástæðu til að fagna, aðrir ekki eins og gengur. Rétt er þó að benda á að enn eru tveir mikilvægir dagar eftir; reyndar þeir dagar þar sem furðu hátt hlutfall hinnar árlegu bóksölu á sér stað.

En, fyrir liggur að glæpasagnakóngur og drottning halda hásætum sínum þetta árið, sem svo oft áður. Þau tróna á toppi lista, Yrsa nú 3. vikuna í röð á toppnum en Arnaldur er á toppi lista yfir samanlagða bóksölu frá áramótum.

Gunnar Helgason má sannarlega vel við una í 3. sætinu og einnig Auður Jónsdóttir í því fjórða. Ævar Þór Benediktsson er í fimmta sæti og Óttar Sveinsson er þrautreyndur á topp tíu lista með eina af Útkallsbókum sínum. Í sjöunda sæti er svarti hesturinn, Páll Baldvin Baldvinsson, en vegleg bók hans um Stríðsárin er uppseld og hafa útgefendur hans gripið til þess að gefa út sérstakt gjafabréf, næstu prentunar er að vænta. Þá eru þeir nýir á topp tíu lista Guðmundur Andri Thorsson með bók um sig og Thor föður sinn Vilhjálmsson og svo Stefán Máni með Nautið. Og í tíunda sæti er Jón Kalmann, sígandi lukka er best og aðdáendahópur hans vex örugglega með hverju árinu.

Tveir mikilvægustu dagar í bóksölunni eru framundan en línur eru að skýrast.visir/valli
Bóksölulistinn -Topplistinn

20 mest seldu bækurnar vikuna 14.-20. desember

  1. Sogið – Yrsa Sigurðardóttir - Veröld
  2. Þýska húsið – Arnaldur Indriðason – Forlagið, Vaka Helgafell
  3. Mamma klikk! – Gunnar Helgason – Forlagið, Mál og menning
  4. Stóri skjálfti – Auður Jónsdóttir – Forlagið, Mál og menning
  5. Þín eigin goðsaga – Ævar Þór Benediktsson – Forlagið, Mál og menning
  6. Útkall í hamfarasjó – Óttar Sveinsson - Útkall
  7. Stríðsárin 1938 – 1945 – Páll Baldvin Baldvinsson – Forlagið, JPV
  8. Og svo tjöllum við okkur í rallið – Guðmundur Andri Thorsson – Forlagið, JPV
  9. Nautið – Stefán Máni – Sögur útgáfa
  10. Eitthvað á stærð við alheiminn – Jón Kalman Stefánsson - Bjartur
  11. Vísindabók Villa : geimurinn og geimferðir – Vilhelm Anton og Sævar Helgi – Forlagið, JPV
  12. Brynhildur Georgía Björnsson - Ragnhildur Thorlacius – Bjartur
  13. Gleðilegt uppeldi – Margrét Pála Ólafsdóttir - Bókafélagið
  14. Hundadagar – Einar Már Guðmundsson – Forlagið, Mál og menning
  15. Endurkoman – Ólafur Jóhann Ólafsson – Veröld
  16. Áfram Ísland - Björn Bragi Arnarsson – Fullt tungl
  17. Atvinnumaðurinn Gylfi Sigurðsson - Ólafur Þór Jóelsson og Viðar Brink - Sena
  18. Kafbátur í sjónmáli – Illugi Jökulsson – Sögur útgáfa
  19. Munaðarleysinginn – Sigmundur Ernir Rúnarsson og Matthías Bergsson - Bjartur
  20. Café Sigrún – Sigrún Þorsteinsdóttir – Forlagið, Vaka Helgafell
 

Íslensk skáldverk

  1. Sogið – Yrsa Sigurðardóttir – Veröld
  2. Þýska húsið – Arnaldur Indriðason – Forlagið, Vaka Helgafell
  3. Stóri skjálfti – Auður Jónsdó ttir – Forlagið, Mál og menning
  4. Nautið – Stefán Máni – Sögur útgáfa
  5. Eitthvað á stærð við alheiminn – Jón Kalman Stefánsson – Bjartur
  6. Hundadagar – Einar Már Guðmundsson – Forlagið, Mál og menning
  7. Endurkoman – Ólafur Jóhann Ólafsson – Veröld
  8. Útlaginn – Jón Gnarr – Forlagið, Mál og menning
  9. Dimma – Ragnar Jónasson – Veröld
  10. Gildran – Lilja Sigurðardóttir – Forlagið, JPV
  11. Stúlka með höfuð – Þórunn Jarla Valdimarsdóttir – Forlagið, JPV
  12. Litlar byltingar – Kristín Helga Gunnarsdóttir – Forlagið, Mál og menning
  13. Sjóveikur í München – Hallgrímur Helgason – Forlagið, JPV
  14. Hvað með börnin? – Hugleikur Dagsson – Forlagið, Ókeibæ
  15. Geirmundar saga Heljarskinns – Bergsveinn Birgisson – Bjartur
 

Ungmennabækur – skáldverk

  1. Leitin að tilgangi unglingsins – Bryndís Björgvinsdóttir, Arnór Björnsson og Óli Gunnar Gunnarsson – Forlagið, JPV
  2. Skuggasaga : Arftakinn – Ragnheiður Eyjólfsdóttir – Forlagið, Vaka Helgafell
  3. Vetrarfrí – Hildur Knútsdóttir – Forlagið, JPV
  4. Drauga-Dísa – Gunnar Theodór Eggertsson – Forlagið, Vaka Helgafell
  5. Sölvasaga unglings – Arnar Már Arngrímsson – Sögur útgáfa
  6. Violet og Finch – Jennifer Niven – Björt bókaútgáfa
  7. Mórún : Í skugga Skrattakolls – Davíð Þór Jónsson - Kaldá
  8. Halloween : drauga- og hryllingssögur – Guðjón Ingi Eiríksson og Gunnar Kr. Sigurjónsson – Bókaútgáfan Hólar
  9. Þegar þú vaknar – Franziska Moll – Björt bókaútgáfa
  10. Nóttin langa – Stefán Máni – Sögur útgáfa
 

Barnabækur – skáldverk

  1. Mamma klikk! – Gunnar Helgason – Forlagið, Mál og menning
  2. Þín eigin goðsaga – Ævar Þór Benediktsson – Forlagið, Mál og menning
  3. Grimmi tannlæknirinn – David Valliams – Bókafélagið
  4. Jólasyrpa 2015 – Walt Disney – Edda útgáfa
  5. Strákurinn í kjólnum – David Walliams – Bókafélagið
  6. Ég elska máva – Þorgrímur Þráinsson – Forlagið, Mál og menning
  7. Dúkka – Gerður Kristný – Forlagið, Mál og menning
  8. Kvöldsögur fyrir krakka – Setberg
  9. Dagbók Kidda klaufa 7 : Besta ballið – Jeff Kinney - Tindur
  10. Kafteinn Ofurbrók og endurkoma... – Dav Pilkey – Forlagið, JPV
 

Ævisögur

  1. Og svo tjöllum við okkur í rallið – Guðmundur Andri Thorsson – Forlagið, JPV
  2. Brynhildur Georgía Björnsson - Ragnhildur Thorlacius - Bjartur
  3. Atvinnumaðurinn Gylfi Sigurðsson - Ólafur Þór Jóelsson og Viðar Brink - Sena
  4. Munaðarleysinginn – Sigmundur Ernir Rúnarsson og Matthías Bergsson - Bjartur
  5. Týnd í Paradís – Mikael Torfason – Sögur útgáfa
  6. Egils sögur – á meðan ég man – Páll Valsson og Egill Ólafsson – Forlagið, JPV
  7. Þá hló Skúli – Óskar Guðmundsson – Forlagið, JPV
  8. Steven Gerrard : árin hjá Liverpool – Sigfús Guttormsson – Bókaútgáfan Hólar
  9. Nína S. – Hrafnhildur Schram – Crymogea
  10. Eitt á ég samt – Árni Bergmann – Forlagið, Mál og menning
 

Fræði og almennt efni

  1. Útkall í hamfarasjó – Óttar Sveinsson - Útkall
  2. Stríðsárin 1938 – 1945 – Páll Baldvin Baldvinsson – Forlagið, JPV
  3. Gleðilegt uppeldi – Margrét Pála Ólafsdóttir - Bókafélagið
  4. Áfram Ísland - Björn Bragi Arnarsson – Fullt tungl
  5. Kafbátur í sjónmáli – Illugi Jökulsson – Sögur útgáfa
  6. Traktorar í máli og myndum – Jemima Dunne – Forlagið, JPV
  7. Þegar siðmenningin fór fjandans til – Gunnar Þór Bjarnason – Forlagið, Mál og menning
  8. Hersetan á Ströndum og Norðurlandi vestra – Friðþór Eydal – Bókaútgáfan Hólar
  9. Vísindabókin – Ýmsir höfundar - Forlagið, Mál og menning
  10. Hlunkurinn – Fánýtur fróðleikur – Ýmsir höfundar – Sögur útgáfa
 

Ungmennafræði- og handbækur

  1. Stelpur – Kristín Tómasdóttir - Veröld
  2. Fótboltaspurningar 2015 – Bjarni Þór Guðjónsson – Bókaútgáfan Hólar
  3. Skytturnar þrjár – Illugi Jökulsson – Sögur útgáfa
  4. Fótbolti : bestu karlarnir – Illugi Jökulsson og Björn Þ. Sigurbjörnsson – Sögur útgáfa
  5. Stelpurnar okkar – Björn Þ. Sigurbjörnsson – Sögur útgáfa
  6. 15 grimmustu risaeðlurnar – Illugi Jökulsson – Sögur útgáfa
  7. 30 dýr í útrýmingarhættur – Illugi Jökulsson – Sögur útgáfa
  8. 15 svakalegir sjóræningjar – Illugi Jökulsson – Sögur útgáfa
  9. 30 undur veraldar – Helgi Hrafn Guðmundsson – Sögur útgáfa
  10. 30 frægustu víkingar sögunnar – Kolbeinn Óttarsson Proppé og Illugi Jökulsson – Sögur útgáfa
 

Barnafræði- og handbækur

  1. Vísindabók Villa : geimurinn og geimferðir – Vilhelm Anton og Sævar Helgi – Forlagið, JPV
  2. Skósveinar : leitið og finnið – Universal Studios – Bókaútgáfan Hólar
  3. Matreiðslubókin mín og Mikka – Walt Disney – Edda útgáfa og Setberg
  4. Spurningabókin 2015 – Bjarni Þór Guðjónsson – Bókaútgáfan Hólar
  5. Minecraft 4 : Byggingahandbók – Forlagið, Vaka Helgafell
  6. Bestu barnabrandararnir – Ýmsir – Bókaútgáfan Hólar
  7. Staðreyndabók Sveppa – Sverrir Þór Sverrisson - Bókafélagið
  8. Minecraft 3 : Bardagahandbók – Forlagið, Vaka Helgafell
  9. Frozen : hár og föndur – Walt Disney – Edda útgáfa
  10. Fræðabrunnur – Setberg
 

Ljóð

  1. Öskraðu gat á myrkrið – Bubbi Morthens – Forlagið, Mál og menning
  2. Frelsi – Linda Vilhjálmsdóttir – Forlagið, Mál og menning
  3. Perlur úr ljóðum íslenskra kvenna – Ýmsir / Silja Aðalsteinsdóttir ritst. - Forlagið
  4. Jólaljóð – Ýmsir / Gylfi Gröndal valdi - Forlagið
  5. Ljóðasafn – Vilborg Dagbjartsdóttir – Forlagið, Mál og menning
  6. Ljóðaúrval – Gyrðir Elíasson - Dimma
  7. Stormviðvörun – Kristín Svava Tómasdóttir - Bjartur
  8. Gráspörvar og ígulker – Sjón – Forlagið, JPV
  9. Píslirnar hennar mömmu – Urður Snædal - Bókstafur
  10. Leir – Ýmsir – Óðinsauga
 

Uppsafnaður listi frá 1. janúar til 20. desember

20 mest seldu bækur ársins

  1. Þýska húsið – Arnaldur Indriðason – Forlagið, Vaka Helgafell
  2. Sogið – Yrsa Sigurðardóttir - Veröld
  3. Mamma klikk! – Gunnar Helgason – Forlagið, Mál og menning
  4. Þín eigin goðsaga – Ævar Þór Benediktsson – Forlagið, Mál og menning
  5. Útkall í hamfarasjó – Óttar Sveinsson - Útkall
  6. Stóri skjálfti – Auður Jónsdóttir – Forlagið, Mál og menning
  7. Stríðsárin 1938 – 1945 – Páll Baldvin Baldvinsson – Forlagið, JPV
  8. Leynigarður – Johanna Basford – Bjartur
  9. Himneskt að njóta – Sólveig Eiríksdóttir og Hildur Ársælsdóttir – Himneskt
  10. Eitthvað á stærð við alheiminn – Jón Kalman Stefánsson – Bjartur
  11. Vísindabók Villa : geimurinn og geimferðir – Vilhelm Anton og Sævar Helgi – Forlagið, JPV
  12. Café Sigrún – Sigrún Þorsteinsdóttir – Forlagið, Vaka Helgafell
  13. Hundadagar – Einar Már Guðmundsson – Forlagið, Mál og menning
  14. Nautið – Stefán Máni – Sögur útgáfa
  15. Og svo tjöllum við okkur í rallið – Guðmundur Andri Thorsson – Forlagið, JPV
  16. Endurkoman – Ólafur Jóhann Ólafsson – Veröld
  17. Brynhildur Georgía Björnsson - Ragnhildur Thorlacius – Bjartur
  18. Atvinnumaðurinn Gylfi Sigurðsson - Ólafur Þór Jóelsson og Viðar Brink - Sena
  19. Útlaginn – Jón Gnarr – Forlagið, Mál og menning
  20. Kafbátur í sjónmáli – Illugi Jökulsson – Sögur útgáfa
 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×