Systkini á Spáni sökuð um að hafa lokað litla bróður inni um árabil Atli Ísleifsson skrifar 30. desember 2015 10:03 Maðurinn fannst á dýnu innan um eigin úrgang í litlu rými í risi í húsi systkinanna. Vísir/EPA
Lögregla á Spáni hefur handtekið systkini, 76 ára mann og 61 árs konu, vegna gruns um að þau hafi um árabil misnotað og haldið litla bróður sínum lokuðum inni á heimili fyrir utan borgina Sevilla.El Pais greinir frá þessu. Samkvæmt frétt El Pais fannst Carlos, 59 ára bróðir systkinanna, nakinn, óhreinn og mjög vannærður í þriggja fermetra rými í risi þar sem systkinin eru talin hafa haldið honum föngnum. Þau eru sögð hafa lifað á lífeyrisgreiðslum mannsins. Maðurinn fannst á dýnu innan um eigin úrgang. Spænskir miðlar segja hann hafa orðið fyrir alvarlegum heilaskaða á sínum yngri árum. Sjúkraskýrslur sýna að hann hafi síðast verið tekinn í skoðun árið 1996. Maðurinn hvarf fyrir mörgum árum en systkinin, sem búa í bænum Dos Hermanas, sögðu nágrönnum að bróðir þeirra hefði verið lagður inn á sjúkrahús. Lögregla fann manninn þann 17. desember eftir að hafa handtekið eldri bróðurinn vegna óspekta sem rekja mátti til áfengisneyslu hans. Þegar honum var fylgt heim kom lögregla auga á hurð með hengilás. Þegar hún var opnuð fannst maðurinn. Nágrannar segjast hafa óttast systkinaparið og forðast þau. Systkinin hafi sömuleiðis forðast nágrannana.
Mest lesið „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Erlent Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Innlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent Orðinn „kokhraustur kvenhatari“ og tækifærissinni Innlent Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu Erlent „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Erlent Segir að verjast þurfi árásum á flugvöllinn með fullum hnefa Innlent Koma siglandi og sótt á hestvagni Innlent Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Innlent Fleiri fréttir „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Sjá meira