Lífið

Miðasala á tónleika Alt J er hafin

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Alt J á NME verðlaununum í fyrra.
Alt J á NME verðlaununum í fyrra. vísir/getty
Miðasala á tónleika bresku hljómsveitarinnar Alt-J í Vodafone-höllinni er hafin á midi.is. Tónleikarnir munu fara fram þann 2. júní næstkomandi.

Sveitin er án vafa ein sú heitasta í dag. Frumburður hennar, An Awesome Wave, kom út árið 2012 og hlaut hin virtu Mercury verðlaun. Önnur platan, This Is All Yours, kom út í fyrra og fór beint á toppinn í Bretlandi og víðar um heiminn.

Sveitin er nú á tónleikaferð um heiminn til að fylgja eftir útgáfu This Is All Yours en á sumum stöðum hefur eftirspurnin eftir miðum verið slík að þurft hefur að breyta um tónleikastað.


Tengdar fréttir

Alt-J á leið til landsins

Ein heitasta hljómsveit heimsins í dag, alt-J, kemur fram í Vodafonehöllinni 2. júní. Sveitin var á dögunum tilnefnd til Grammy-verðlauna fyrir plötu ársins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×