Erlent

Björguðu tveimur hundum af ísnum

Atli ísleifsson skrifar
Lola og Thunder á ísnum í Revere.
Lola og Thunder á ísnum í Revere.
Bandarískir slökkviliðsmenn björguðu manni og tveimur hundum hans sem rak á ís í á í bænum Revere í Massachusetts um helgina.

Hundarnir tveir höfðu sloppið frá eiganda sínum og haldið út á ísinn í ánni þar sem þá rak frá landi. Eigandinn reyndi þá bjarga hundunum en festist fljótt sjáfur. Slökkviliði tókst fljótlega að koma eigandanum á land og svo hundunum tveimur eftir um 90 mínútna björgunaraðgerðir.

Hundarnir Lola og Thunder voru fluttir til dýralæknis sem komst að því þeim hafi ekki orðið meint af lífsreynslunni.

Sjá má frétt WCVB Channel 5 um málið að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×