Erlent

Þrír létust í bruna í Noregi

Atli Ísleifsson skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Þrír eru látnir eftir að mikill bruni kom upp í raðhúsi í norska bænum Solbergelva, skammt frá Drammen í kvöld.

Slökkvilið á staðnum tilkynnti um klukkan 18 fyrr í kvöld að tök hefðu náðst á eldinum.

„Reykkafarar hafa farið í gegnum bygginguna og ekki hafa fundist fleiri en þeir þrír sem hefðu fundist látnir,“ segir Olav Myrvold, talsmaður slökkviliðs í samtali við NTB.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×