Erlent

Rauði herinn syngur lagið Happy

Atli Ísleifsson skrifar
Pharrell Williams átti eitt vinsælasta lag síðasta árs.
Pharrell Williams átti eitt vinsælasta lag síðasta árs. Vísir/AFP
Rússneski herinn hefur birt myndband þar sem hermenn syngja eitt vinsælasta lag síðasta árs, „Happy“, með bandaríska tónlistarmanninum Pharrell Williams.

Herinn birti myndbandið á YouTube á þriðjudaginn þar sem kór hersins sést syngja lagið í fullum skrúða.

Í frétt Independent segir að upphaflegur tilgangur kórs Rauða hersins hafi verið að efla baráttuvilja örmagna hermanna, yfirleitt með því því að vegsama byltingarandann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×