Eftirlitsmenn gagnrýna kosningarnar í Tyrklandi Guðsteinn Bjarnason skrifar 3. nóvember 2015 09:00 Kúrdi les fréttir af kosningaúrslitunum í Díjarbakír í gær. vísir/EPA
Frambjóðendur til þingkosninganna í Tyrklandi um helgina nutu ekki jafnræðis í kosningabaráttunni, samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum kosningaeftirlits Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Sumir frambjóðendur áttu erfiðara en aðrir með að koma boðskap sínum á framfæri við kjósendur, og réði þar mestu aukin spenna og ofbeldi í aðdraganda kosninganna, einkum í suðausturhluta landsins þar sem stjórnarherinn átti í átökum við Kúrda. Andrúmsloft ótta var magnað upp, meðal annars með handtökum á stuðningsmönnum HDP-flokksins, sem hefur barist fyrir réttindum Kúrda. Þá er fjölmiðlafrelsi ábótavant í landinu, að mati eftirlitsmanna. Sakamál voru höfðuð gegn tugum blaðamanna á síðustu vikunum fyrir kosningarnar, þar sem blaðamennirnir voru sakaðir um stuðning við hryðjuverkamenn. Og öll umfjöllun um rannsókn á sjálfsvígsárásinni í Ankara í síðasta mánuði var bönnuð. Recep Tayyip Erdogan forseti segist hins vegar ekkert skilja í þessari gagnrýni. „Þjóðarviljinn hefur kosið mig með 52 prósentum atkvæða,” sagði hann við fjölmiðla. „Heimsbyggðin öll ætti að bera virðingu fyrir þessu, en ég hef ekki orðið var við slíkan þroska.“ Flokkur Erdogans, AK-flokkurinn, endurheimti í þessum kosningum öruggan meirihluta á þingi, en þó ekki nægan meirihluta til þess að geta náð fram breytingum á stjórnarskrá landsins. Erdogan forseti óskar nú eftir aðstoð smærri flokkanna við stjórnarskrárbreytingar, sem eiga að styrkja stöðu forsetans. Kúrdaflokkurinn HDP náði síðan mönnum á þing þrátt fyrir háan þröskuld, en flokkar þurfa heil tíu prósent atkvæða til að fá menn á þing.
Mest lesið Ökumaðurinn liðlega tvítugur Innlent Sagðist nýlega hafa rætt við löngu látna konu sína Innlent Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Innlent Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Innlent Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Innlent Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Innlent Réðst á fyrrverandi kærustur og aðstoðarslökkviliðsstjóra Innlent Ríkisstarfsmenn ofmetnir um fimm þúsund Innlent Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Innlent Margir í vandræðum í Kömbunum Innlent Fleiri fréttir Tvö eftir í leiðtogakjöri breskra íhaldsmanna Stóð af sér vantrauststillögu Þrír fá Nóbelsverðlaun fyrir að afhjúpa uppbyggingu prótína Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biden kallaði Netanjahú „tíkarson“ og „slæman gaur“ X snýr aftur í Brasilíu Hugðust ráðast á fjölda fólks á kjördag og deyja píslardauða Biden mun freista þess að leggja Netanyahu línurnar varðandi Íran Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Milton safnar aftur krafti Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Lögregla upplýsir ekki um notkun andlitsgreiningarhugbúnaðar Koma sér í skjól undan fellibylnum Milton Sjúkrahús í Kaliforníu ákært fyrir að neita óléttri konu um neyðaraðstoð Hlutu Nóbelinn fyrir framlag til vélræns náms Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Grunaði í máli Madeleine McCann sýknaður af öðrum brotum Svaraði spurningum um Netanyahu, Pútín og reynslu af skotvopnum „Þú hugsar bara: Hver var skotinn?” Ekkert lát á aðgerðum Ísraelshers gegn Hamas og Hezbollah „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Sjá meira