Menning

Gerir skúlptúra úr neonlituðum límmiðum

Mynd af verkinu Hrúga I, sem er einn skúlptúranna á sýningunni.
Mynd af verkinu Hrúga I, sem er einn skúlptúranna á sýningunni. Mynd/Helga Sif Guðmundsdóttir
Listamaðurinn Helga Sif Guðmundsdóttir opnar í dag sýninguna INFINITE í Listasal Mosfellsbæjar.

Sýningin samanstendur af innsetningu og skúlptúrum. Innsetningin er gerð úr plastfilmu og timbri en skúlptúrarnir úr neonlituðum límmiðum.

Skúlptúrarnir eru forvitnilegir en þá segir Helga vera á mörkum þess að vera tvívíð verk. 

„Ég nota sjálft efnið til að framkalla birtu eða endurkast án þess þó að nota nokkuð nema það sjálft. Ég reyni að láta efnið stjórna ferðinni og hef sem minnst áhrif á það að öðru leyti en því að draga fram eðli þess sem í þessu tilfelli er endurkast ljóss og litar,“ segir Helga.

Helga Sif hefur áður unnið innsetningar úr plastfilmu og tré en þá var það umhverfisverk á lifandi tré, sem hún gerði í skógi í Svíþjóð.

„Núna er ég að prófa að taka efnið inn og notast við manngerða birtu, eða lljóskastara, og timbur. Ég vildi prófa að taka þetta viðfangsefni eða hráefni lengra en ég reyni stanslaust að ögra sjálfri mér og gera tilraunir með hversu langt ég kemst með þau hráefni sem ég nota. Þetta hráefni er mjög viðkvæmt og ljósnæmt sem er það sem mér finnst mest áhugavert við það. Mér líður stundum eins og ég sé að handleika eitthvað sem geti svo auðveldlega skemmst og orðið ljótt á sama tíma og það getur orðið svo ótrúlega fallegt. Það er togstreitan sem ég vil ná fram. Titillinn er vísun í það að vera í ferli sem lýkur ekki heldur sé áframhaldandi,“ segir Helga um innsetninguna. 

Sýningin er opnuð í Listasal Mosfellsbæjar klukkan 16 í dag og stendur hún til 7. febrúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.