Erlent

Hvenær kemur barnið í heiminn og hvað mun það heita?

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Breska þjóðin bíður í ofvæni eftir að Kate Middleton, hertogaynja af Cambridge, eignist sitt annað barn.
Breska þjóðin bíður í ofvæni eftir að Kate Middleton, hertogaynja af Cambridge, eignist sitt annað barn. vísir/getty
Breska þjóðin bíður í ofvæni eftir að Kate Middleton, hertogaynja af Cambridge, eignist sitt annað barn. Ekki hefur verið greint frá settum degi en konungsfjölskyldan hefur sagt að von sé á barninu um miðjan eða lok apríl. Fjölmiðlar ytra slá því upp að von sé á barninu á allra næstu dögum.

Undanfarna tvo daga hafa hennar allra hörðustu aðdáendur komið sér fyrir við St. Mary‘s spítalann í Paddington-hverfi Lundúnarborgar, þar sem Kate hyggst eiga barnið. Virðast þeir hafa komið sér nokkuð vel fyrir og hafa sett þar upp borð, stóla og tjöld. Lögregla hefur því gripið til ýmissa ráðstafana og meðal annars sett upp öryggisgirðingar umhverfis sjúkrahúsið.

  • Veðbankar telja að barnið muni koma í heiminn 25.apríl
  • Barnið mun fæðast á einkareknum lúxus-spítala
  • Talið er að barnið hljóti nafnið Alice eða Arthur
Einkarekinn lúxusspítali

Öll börn konungsfjölskyldunnar hafa fæðst á Lindo-deildinni á St. Mary‘s spítalanum síðustu tvo áratugi. Spítalavistin er þó í dýrari kantinum og gæti kostað um tvær milljónir. Eðlileg fæðing kemur til með að kosta rúmlega eina milljón króna. Sé barnið tekið með keisaraskurði mun það kosta 1,4 milljónir króna. Hver sólarhringur eftir það kostar um 237 þúsund krónur.

Verðandi mæður sem kjósa að fæða börn sín í þessari tilteknu deild fá lúxusmeðferð frá starfsfólki spítalans og bestu læknisþjónustu sem völ er á. Þá eru kokkar á vakt allan sólarhringinn, finni mæðurnar fyrir hungri. Að fæðingu lokinni er kveikt á kertum, boðið upp á fjögurra rétta máltíð og gefinn er kostur á að skála í kampavíni.



Hvað mun barnið heita?

Veðbankar víða um heim loga. Hafa fjölmargir freistað gæfunnar og veðjað á ýmis nöfn. Hjónin vita ekki kyn barnsins en telja flestir að nafnið verði heldur „ævintýralegra“ en áður. Nafnið Alice trónir á toppinum, komi lítil prinsessa í heiminn, ásamt nöfnunum Elizabeth, Charlotte og Victoriu. Komi drengur í heiminn veðja flestir á að hann fái nafnið Arthur, James eða Filippus.

Þá hafa margir velt fyrir sér hvort fæðingin verði náttúruleg líkt og í ágúst 2013 þegar Kate átti frumburð sinn, George. Fjölmiðlar ytra segja að náttúruleg fæðing sé fyrirhuguð en hefur það þó ekki verið staðfest af konungsfjölskyldunni. Liggur það þó ljóst fyrir að bestu læknar heims muni taka á móti barninu, þar á meðal Guy Thorpe-Beeston, sem tók á móti litla George.

Ættingjar fá fyrst fréttirnar – svo almenningur

Elísabet drottning og aðrir ættingjar hjónanna fá fyrst fréttir af erfingjanum, áður en almenningur fær stórfréttirnar. Fjölmiðlafulltrúar konungsfjölskyldunnar munu svo senda út tilkynningu um kyn, þyngd og hvenær barnið fæddist. Skömmu síðar mun fjölskyldan birta fréttirnar á samskiptamiðlum; Instagram og Twitter.

Hennar allra hörðustu aðdáendur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×